17:31
Tinna táknmálsálfur
Flugteppið

Tinna táknmálsálfur er sniðugur álfur sem býr í Blómabæ í Bláskógarbyggð. Hún lendir í ýmsum ævintýrum með vinum sínum Kötu kónguló og Tedda tannálfi og ef til vill lærum við líka svolítið táknmál.
Höfundur:
Laila Margrét Arnþórsdóttir
Leikur:
Tinna: Kolbrún Völkudóttir
Kata kónguló: Jan Fiurasek
Talsetning:
Tinna: Álfrún Helga Örnólfsdóttir
Kata kónguló: Erla Ruth Harðardóttir
Teddi tannálfur: Björgvin Franz Gíslason og Friðrik Friðriksson
Búningar: Helga Rún Pálsdóttir
Tinnu langar að fara í ferðalag og sjá nýjar álfaborgir en Teddi vill ekki fara með af því að hann er svo þreyttur. Tinna lætur ekki segjast og notar töfraduft til að breyta gömlu teppi í flugteppi sem hún og Teddi fljúga síðan á.
Er aðgengilegt til 16. apríl 2027.
Lengd: 7 mín.
e