
Serían gerist í litríkum og súrsætum skrímsla heimi þar sem fjölbreytt skrímsli búa í sátt og sæti. Í hverjum þætti kynnumst við nýju skrímsli sem býr yfir vægast sagt sérstökum eiginleikum. Kíkjum við og sjáum hvað setur, kannski við getum kynnst þeim aðeins betur.
Finni Krumpa prumpuskrímsli fólk í vanda, tekur hún til sinna handa. Hún sturtar í sig nokkrum rúsínum og þá þýtur hún prumpandi af stað. Hún flýgur um allt, hátt og lágt með prumpuský í eftirdragi. Best að halda niðri í sér andanum skyldi hún fljúga fram hjá!
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er að spila frisbí með krökkunum. Þegar frisbídiskurinn festist á þakinu þá eru góð ráð dýr. Strákurinn hans vill nota kengúrustöngina til að hoppa nógu hátt til að ná efst á þakið, en Edda lýst alls ekki vel á það!
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Ný sería um hinn vinsæla Bjössa Brunabangsa! Í þessari seríu fylgjumst við með hetjunni Bjössa brunabangsa, sem elskar að keyra slökkviliðsbíl og slökkva elda. Á hverjum einasta degi leysir hann spennandi verkefni með hjálp frá samstarfsfólki sínu.

Líflegir barnaþættir um stúlku sem getur læknað leikföng með hjálp frá uppstoppuðum vinum sínum sem öðlast líf í gegnum töfra hlustunarpípu hennar.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Hópurinn klífur upp að Galdrahellinum og lendir í óvæntri hættu. Kisi finnur skoffínahjörð og Ormhildi tekst að róa árásargjörn naut. Hallgrímur, sem veit ekki að þau eru í nánd, heldur áfram í átt að hellinum. Kisi sameinast hópnum á ný og Ormhildur fer með þau yfir stórbrotið landslag.
Skemmtiþáttur um íslenska tungu í umsjón Braga Valdimars Skúlasonar og Vigdísar Hafliðadóttur. Þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur eru Kjartan Darri Kristjánsson, Ólafur Ásgeirsson, Björn Kristjánsson og Sandra Barilli.

Íslenskur þáttur um heilaslög þar sem fjallað er um orsakir, einkenni og afleiðingar þessa alvarlega sjúkdóms og mikilvægi skjótra viðbragða þegar slag á sér stað. Á hverju ári fá um 500 einstaklingar á Íslandi heilaslag og það er þriðja algengasta dánarorsökin hér á landi. Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson og Aðalgeir Gestur Vignisson.
Þættir sem fjalla um þjóðirnar sem taka þátt á HM karla í fótbolta. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um heimsmeistaratitilinn á þessum stærsta viðburði vinsælustu íþróttagreinar veraldar.

Norsk gamanþáttaröð tekin upp í Karls Jóhanns-götu í Osló. Þar getur næstum allt gerst og fólkið á götunni lendir óvart í sjónvarpinu. Umsjónarmenn eru Erik Solbakken og Hasse Hope. e.

Dóri DNA spjallar við marga af virkustu grínistum landsins og spyr hvort hægt sé að lifa á gríni einu saman. Hver er galdurinn við húmor og þarf maður að æfa sig í fyndni? Gestir Dóra eru meðal annarra Anna Svava, Ari Eldjárn, Bergur Ebbi, Dóra Jóhannsdóttir, Þorsteinn Guðmundsson, Saga Garðarsdóttir, Steindi Jr. og Hugleikur Dagsson. Dagskrárgerð: Gaukur Úlfarsson.
Í þriðja þætti heimsækir Dóri Ara Eldjárn til Edinborgar, fer á hádegisbarinn með Snjólaugu Lúðvíksdóttur og fer í Versló með Aroni Mola.

Þáttaröð frá árinu 2006 um íslenska einleikara sem allir hafa staðið framarlega í íslensku tónlistarlífi um lengri eða skemmri tíma. Umsjón: Jónas Sen. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Jónas Sen ræðir við Áshildi Haraldsdóttur flautuleikara.

Mynd frá 2000 um Hans Jóhannsson fiðlusmið. Dagskrárgerð: Inga Lísa Middleton.

Heimildarmynd um vísindin sem liggja að baki þáttunum Saga Svíþjóðar. Rætt er við vísindamenn og sérfræðinga sem útskýra hvernig hægt er að komast að því hvernig lifnaðarhættir og útlit fólks var fyrir hundruðum, og jafnvel þúsundum, ára.
Nýir heimildarþættir um Bubba Morthens þar sem farið er yfir 15 vinsælustu lögin hans að mati þjóðarinnar. Rætt er við Bubba auk fjölda samferðamanna hans þar sem lögin og hans helstu tímabil á löngum ferli eru rifjuð upp. Sýnt er áður óséð myndefni og upptökur. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson. Leikstjórn: Þór Freysson.

Þættir um líf ungra dansara í Konunglega danska ballettinum.

Loft hefur svifið um loftin blá frá örófi alda án þess að lenda nokkurn tímann á jörðu. Það kynnist ævintýralegri tilvist mannsbarna í gegnum sjónaukann sinn og endurspeglar sjálft sig í þeim.
Loft hefur loksins fundið klútinn sinn en þarf nú að finna út úr því hvernig það nær honum til baka! Áróra nær að gera við hjólið sitt alveg sjálf og Sunna lætur krakkana keppa í reipitogi.
Þorri og Þura eru álfar og heimsins bestu vinir. Einn daginn eiga þau von á Eysteini vini sínum en svo bólar ekkert á honum. Þorri og Þura leggja þá af stað í leit að vini sínum.
Þorri og Þura leggja af stað í leit að Eysteini. Allt í einu fer jörðin að hristast og þau heyra í Eysteini hrópa á hjálp í fjarska.

Fjórir krakkar í rokkhljómsveit æfa þekkt íslenskt rokklag og semja eigið lag. Í leiðinni fræðumst við um hljóðfærin í hljómsveitinni og rokktónlistarsöguna.
Krakkarnir í bílskúrnum semja lag. Við fræðumst um hljóðfærið trommur og nokkra frægustu trommuleikara tónlistarsögunnar.
Þættir frá 2011 um íslenska tónlist í umsjá Sigtryggs Baldurssonar. Honum til halds og trausts er greiningardeild Hljómskálans, sem skipuð er þeim Guðmundi Kristni Jónssyni, öðru nafni Kidda í Hjálmum, og Braga Valdimar Skúlasyni í Baggalút. Farið er um víðan völl íslensku tónlistarsenunnar, reynt að ráða í meikdrauma, rýna í suðupotta og þræða fornar söguslóðir. Auk þess eru þekktir tónlistarmenn fengnir til að vinna nýtt efni fyrir þættina.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Heimildarþáttaröð þar sem David Attenborough kannar náttúru og dýralíf í Asíu, stærstu heimsálfu jarðar. Þættirnir eru talsettir á íslensku en sýndir með ensku tali á RÚV 2 á sama tíma.

Íslensk stuttmynd um vanafastan og heimakæran eldri mann sem neyðist til að fara út fyrir þægindarammann þegar barnabarn hans kemur í heimsókn og heimtar að spila fótbolta við afa sinn. Á vellinum gerir aldursmunurinn fljótt vart við sig þar sem gamli maðurinn er ekki jafn frár á fæti og sá ungi. Afinn neitar að láta aldurinn stoppa sig og byrjar að búa sig undir næstu viðureign þeirra. Leikstjóri: Hannes Þór Arason. Leikarar: Sigurður Skúlason, Elías Óli Hilmarsson, Tinna Hrafnsdóttir og Þorsteinn Guðmundsson.
Þriðja og síðasta þáttaröð þessara sannsögulegu dönsku þátta. Árið er 1968 og þrátt fyrir velgengni carmenrúllanna á heimsvísu er fyrirtækið í fjárhagsvandræðum. Axel þarf að taka stórar ákvarðanir til að bjarga fyrirtækinu, með ófyrirséðum afleiðingum fyrir alla sem standa honum nærri. Aðalhlutverk: Morten Hee Andersen, Maria Rossing, Lars Ranthe og Nicolai Jørgensen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Belgísk verðlaunamynd frá 2022 í leikstjórn bræðranna Jean-Pierre og Luc Dardenne. Unglingsstúlka vingast við ungan dreng á flótta, þar sem þau komu bæði til Belgíu frá Afríku. Þau mynda bandalag til að lifa af í nýju landi þar sem örlög þeirra ráðast. Aðalhlutverk: Pablo Schils, Joely Mbundu og Alban Ukaj. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Heimildarþáttur þar sem skyggnst er bak við tjöldin við gerð fjórtándu og síðustu þáttaraðarinnar um rannsóknarlögreglukonuna Veru Stanhope.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Heimildarþáttaröð þar sem David Attenborough kannar náttúru og dýralíf í Asíu, stærstu heimsálfu jarðar.