20:15
Miðstöðin
Plötubúðardagurinn, HÆST og Guðjón Þorgils

Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu með áherslu á tónlist, sjónvarp og kvikmyndir. Helstu straumar og stefnur, innlit til áhugaverðs fólks og skemmtilegir gestir í myndveri. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.

Í Miðstöðinni að þessu sinni kynnum við okkur nýja íslenska grínþætti sem heita Hæst og eru í Sjónvarpi Símans. Þættirnir gerast í Menntaskólanum við Sund og við förum í heimsókn þangað og spjöllum við aðstandendur.

Laugardaginn 18. apríl er alþjóðlegi plötubúðardagurinn. Í tilefni þess fáum við til okkar tvo vínylspekúlanta til þess að ræða tónlist á föstu formi, þá Snorra Helgason og Ragnar Kjartansson. Við förum líka í heimsókn í plötubúð og tökum stöðuna á plötubúðinni árið 2026.

Í lok þáttar fáum við heimsókn frá upprennandi poppstjörnu, Gísla Þorgils, sem bar sigur úr býtum í Söngkeppni framhaldsskólanna um liðna helgi.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt.
,