Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Ný ákvæði í byggingareglugerð um ljósvist í íbúðarhúsnæði eiga að tryggja að allar íbúðir njóti héðan í frá nægilegrar dagsbirtu. Anna María Bogadóttir arkitekt og Ásta Logadóttir rafmagnsverkfræðingur segja að ljósvist hafi setið á hakanum við þéttingu byggðar. Á undanförnum árum hafi of margar íbúðir verið byggðar sem myndu ekki standast nýju ákvæðin.
Ólafur Þór Árnason, framkvæmdastjóri skipulags- og umhverfismatssviðs, fer yfir nýju ljósvistarákvæðin og hvaða breytingar þau hafa í för með sér í skipulagi.
Tónlistarmaðurinn Mugison er lagður af stað í tónleikaferðalag. Við fylgjum honum úr hlaði.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Í þætti kvöldsins verður rætt um hvað það myndi þýða fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið.
Gestir þáttarins:
Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra úr Viðreisn
Lilja D. Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins
Spurningakeppni sveitarfélaga frá 2018. Þátttakendur að þessu sinni eru lið frá þeim sveitarfélögum sem komust í úrslit árin á undan eða hafa oftast komist nálægt því. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundur og dómari er Jón Svanur Jóhannsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Lið Akraness: Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir, Gerður Jóhanna Jónsdóttir, Hjalti Brynjar Árnason.
Lið Fjarðabyggðar: Birgir Jónsson, Heiða Dögg Liljadóttir, Kjartan Bragi Valgeirsson.
Heimildarþættir um danskar fjölskyldur þar sem börnin vaða uppi og ráða lögum og lofum á heimilinu. Ráðalausir foreldrarnir fá til liðs við sig sálfræðing sem sérhæfir sig í barnauppeldi í von um að ná aftur stjórn á afkvæmunum.
Íslensk þáttaröð í sex hlutum um dans. Þar er leitað svara við spurningum um hvers vegna fólk dansar, hvernig dansgleðin kviknar og hvers vegna sumir fæðast flinkir dansarar en aðrir taktlausir flækjufætur. Farið verður yfir sögu dansins á Íslandi, mismunandi danstegundir kannaðar og við kynnumst því hvernig dansinn brýst fram á ólíklegustu stöðum. Umsjón: Guðrún Sóley Gestsdóttir. Framleiðsla: Skot.
Tvist, diskó, rokk og breik. Reglulega grípur um sig dansæði sem fær alla heimsbyggðina til að stíga í takt við sömu tónlist. Ísland lætur ekki sitt eftir liggja og við tökum kröftugan þátt í nýjustu dansbylgjunum. Í þessum þætti kynnumst við stærstu dansæðunum á Íslandi, rifjum upp gamla takta og kynnumst goðsögnum á borð við Sæma Rokk, Freestyle-Elmu Lísu og Stefán Baxter breikara.

Ævintýri Tulipop er skemmtileg þáttaröð um litríkan vinahóp sem býr á töfraeyjunni Tulipop. Á hverjum degi gerast ný ævintýri á eyjunni sem sem geta haft áhrifaríkar afleiðingar í för með sér en vináttuböndin reynast ævinlega traust.
Hlutir byrja að hverfa á Tulipop á dularfullan hátt. Grunur beinist að Fredda þegar Gló, Búi og Maddý finna hlutina sína heima hjá honum. En annað kemur á daginn þegar vinirnir finna greni hinnar goðsagnarkenndu Múlahalasúlu.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Kusur fegnar að komast út 2. Ungi fréttamaðurinn Þorsteinn kíkti á sýninguna Innblástur í Tjarnarbíói.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Fjármálaráðuneytið efndi til ráðstefnunnar í dag í tilefni af nýrri skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, sem kom út fyrir helgi. Skýrslunni er ætlað að leggja grunn að upplýstri umræðu um gjaldmiðlamál í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Fjórir erlendir sérfræðingar unnu skýrsluna undir forystu Catherine L. Mann, fyrrverandi aðalhagfræðings OECD. Við ræðum við hana í þætti kvöldsins.
Hópur þjóðþekkts fólks sem vinnur að kvikmynd um ævi þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar óskaði eftir leyfi til þess að grafa bein hans upp í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum, taka úr þeim sýni og senda í DNA-greiningu. Þingvallanefnd tók málið fyrir í síðasta mánuði en afstaða og svar nefndarinnar er sú að hún geti ekki veitt slíka heimild nema að fyrir liggi dómsúrskurður. Meðal þeirra sem eru á bak við umsóknina er Páll Valsson sagnfræðingur sem er gestur Kastljóss.
Finnsk heimildarþáttaröð frá 2025. Hvernig birtist pólitík í ópólitískri keppni? Pólitík hefur alltaf verið samofin Eurovision þrátt fyrir bann EBU við hvers kyns pólitískum yfirlýsingum í keppninni. Fjallað er um Eurovision sem vettvang stjórnmála, skoðana og mótmæla.
Breskir sakamálaþættir frá 2021. Reyndur lögreglumaður og unglingsstúlka hrapa til bana fram af þaki háhýsis í London. Rannsóknarlögreglukonan Sarah Collins er fengin til að stýra rannsókn málsins og fljótlega flækist hún inn í flókinn vef spillinga og leyndarmála innan lögreglunnar. Þættirnir eru byggðir á glæpasögum eftir Kate London, fyrrum lögreglukonu í London. Aðalhlutverk: Gemma Whelan, Tahirah Sharif og Emmett J. Scanlan. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Velskir spennuþættir frá 2022. Blaðakonan Cat Donato snýr aftur á heimaslóðir sínar í Wales í von um að komast að því hvað varð um vinkonu hennar, Elu Roberts, sem hvarf fyrir 18 árum. Aðalhlutverk: Alexandra Roach, Joanna Scanlan og Iwan Rheon. Þættirnir eru ekki vð hæfi barna yngri en 12 ára.
Danskt fjölskyldudrama frá 2025. Líkamsleifar ungbarns finnast á háalofti í íbúðarhúsi í Kaupmannahöfn. Martha, 87 ára, játar á sig glæpinn og fleiri löngu grafin fjölskylduleyndarmál koma upp á yfirborðið. Aðalhlutverk: Ulla Henningsen, Anette Støvelbæk, Alice Bier og Rikke Eberhardt Isen.