Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Fjármálaráðuneytið efndi til ráðstefnunnar í dag í tilefni af nýrri skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, sem kom út fyrir helgi. Skýrslunni er ætlað að leggja grunn að upplýstri umræðu um gjaldmiðlamál í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Fjórir erlendir sérfræðingar unnu skýrsluna undir forystu Catherine L. Mann, fyrrverandi aðalhagfræðings OECD. Við ræðum við hana í þætti kvöldsins.
Hópur þjóðþekkts fólks sem vinnur að kvikmynd um ævi þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar óskaði eftir leyfi til þess að grafa bein hans upp í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum, taka úr þeim sýni og senda í DNA-greiningu. Þingvallanefnd tók málið fyrir í síðasta mánuði en afstaða og svar nefndarinnar er sú að hún geti ekki veitt slíka heimild nema að fyrir liggi dómsúrskurður. Meðal þeirra sem eru á bak við umsóknina er Páll Valsson sagnfræðingur sem er gestur Kastljóss.
