Spurningakeppni sveitarfélaga frá 2018. Þátttakendur að þessu sinni eru lið frá þeim sveitarfélögum sem komust í úrslit árin á undan eða hafa oftast komist nálægt því. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundur og dómari er Jón Svanur Jóhannsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Lið Fljótsdalshéraðs: Björg Björnsdóttir, Hrólfur Eyjólfsson, Þorsteinn Bergsson.
Lið Íslendinganýlendna: Teitur Björn Einarsson. Ingibjörg Guðmundsdóttir, Runólfur Ágústsson.
Nýir heimildarþættir um Bubba Morthens þar sem farið er yfir 15 vinsælustu lögin hans að mati þjóðarinnar. Rætt er við Bubba auk fjölda samferðamanna hans þar sem lögin og hans helstu tímabil á löngum ferli eru rifjuð upp. Sýnt er áður óséð myndefni og upptökur. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson. Leikstjórn: Þór Freysson.
Fimmtán vinsælustu lög Bubba, að mati þjóðarinnar, skoðuð ofan í kjölinn. Hér er farið yfir lögin í 5.–1. sæti og rifjuð upp eftirminnileg augnablik í lífi Bubba.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Sannkölluð íþróttaveisla í þætti dagsins!
1. HM karla í fótbolta hefst í dag 2. Íslenska kvennalandsliðið spilar um sæti á HM 2027 3. Gunnlaugur Árni er fyrstur að tryggja sér keppnisrétt á bandarísku risamóti í golfi.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Heimsmeistaramót karla í knattspyrnu er hafið. Framundan er rúmur mánuður af fótboltafári; 104 leikir í þremur löndum og eitthvað í kringum 10.000 mínútur af fótbolta. Rætt við Kristjönu Arnarsdóttur, fjölmiðlakonu, og Björn Berg, sérfræðing í fjármálumí knattspyrnu um alþjóðapólitíkina, miðaverðið og sitthvað fleira í aðdraganda mótsins.
Í þættinum heimsækjum við líka fuglaljósmyndarann Eyþór Inga Jónsson, sem býr í Svarfaðardal. Hann segir ekkert jafnast á við volkið og slarkið sem fylgir biðinni eftir hinu fullkomna skoti.

Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu með áherslu á tónlist, sjónvarp og kvikmyndir. Helstu straumar og stefnur, innlit til áhugaverðs fólks og skemmtilegir gestir í myndveri. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.
Í þætti kvöldsins heyrum við um áhugavert samstarf Emmsjé Gauta og KK.
HM í fótbolta karla byrjar í dag og þá reimum við á okkur takkaskóna. Edda Sif og Helga Margrét ætla að fara yfir áhugaverða þætti og kvikmyndir, þar sem íþróttir eru í aðalhlutverki, ásamt því að ræða sjarmann á bakvið svona stórmót.
Sumarleikhúsið afturámót er að setja upp Með allt á hreinu í sumar. Við ætlum að fara í heimsókn í þetta kröftuga leikhús. Í lok þáttar fáum við svo tónlistaratriði frá þeim.

Heimildarþættir sem fjalla um tónlistarmyndbönd nokkurra af stærstu poppstjörnum heims. Rætt er við leikstjóra, danshöfunda, gagnrýnendur og listafólkið sjálft.
Ný bresk dramaþáttaröð byggð á samnefndri skáldsögu eftir Barböru Taylor Bradford. Emma Hart starfar sem húshjálp í Yorkshire í byrjun 20. aldar. Með mikilli seiglu vinnur hún sig upp úr fátækt og byggir upp alþjóðlegt viðskiptastórveldi. Aðalhlutverk: Jessica Reynolds, Emmett J. Scanlan og Lydia Leonard. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Samantekt frá leikjum dagsins á HM karla í fótbolta.

Leikin þáttaröð um líf og störf lögreglumanna í Chicago. Aðalhlutverk: Jason Beghe, Jesse Lee Soffer og Tracy Spiridakos. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Breskir spennuþættir um örvæntingafulla móður sem lifir áhættusömu lífi sem skartgripaþjófur á sama tíma og hún reynir að ná dóttur sinni aftur frá félagsþjónustunni og byggja örugga framtíð fyrir þær báðar. Aðalhlutverk: Sophie Turner, Frank Dillane og Mia Millichamp-Long. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Breskur spennumyndaflokkur um rannsóknarlögreglumanninn Max Arnold sem býr í gömlum húsbáti en starfar í einu efnaðasta hverfi Lundúna. Þó ekki skorti auðæfin í Chelsea er þar engu að síður nóg um morð og önnur myrkraverk. Aðalhlutverk: Adrian Scarborough, Peter Bankolé og Lucy Phelps. Myndirnar eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Þegar rán og morð er framið á opnun listasýningar í fínu listagalleríi kynnast rannsóknarlögreglumaðurinn Max Arnold og teymið hans nýrri hlið á listaheiminum í Chelsea.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Suður-Kóreu og Tékklands á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Mexíkó og Suður-Afríku á HM karla í fótbolta.

Samantekt frá leikjum dagsins á HM karla í fótbolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Dökkar verðbólguhorfur ógna kjarasamningum