13:35
Kastljós
HM í fótbolta snýst um margt fleira en fótbolta + Organisti/fuglaljósmyndari í Svarfaðardal

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Heimsmeistaramót karla í knattspyrnu er hafið. Framundan er rúmur mánuður af fótboltafári; 104 leikir í þremur löndum og eitthvað í kringum 10.000 mínútur af fótbolta. Rætt við Kristjönu Arnarsdóttur, fjölmiðlakonu, og Björn Berg, sérfræðing í fjármálumí knattspyrnu um alþjóðapólitíkina, miðaverðið og sitthvað fleira í aðdraganda mótsins.

Í þættinum heimsækjum við líka fuglaljósmyndarann Eyþór Inga Jónsson, sem býr í Svarfaðardal. Hann segir ekkert jafnast á við volkið og slarkið sem fylgir biðinni eftir hinu fullkomna skoti.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 17 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,