17:05
Miðstöðin
Íþróttakvikmyndir og þættir, Emmsjé Gauti og KK og leikhúsið afturámóti

Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu með áherslu á tónlist, sjónvarp og kvikmyndir. Helstu straumar og stefnur, innlit til áhugaverðs fólks og skemmtilegir gestir í myndveri. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.

Í þætti kvöldsins heyrum við um áhugavert samstarf Emmsjé Gauta og KK.

HM í fótbolta karla byrjar í dag og þá reimum við á okkur takkaskóna. Edda Sif og Helga Margrét ætla að fara yfir áhugaverða þætti og kvikmyndir, þar sem íþróttir eru í aðalhlutverki, ásamt því að ræða sjarmann á bakvið svona stórmót.

Sumarleikhúsið afturámót er að setja upp Með allt á hreinu í sumar. Við ætlum að fara í heimsókn í þetta kröftuga leikhús. Í lok þáttar fáum við svo tónlistaratriði frá þeim.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 27 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,