
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1990. Spyrill: Steinunn Sigurðardóttir. Dómari: Sonja B. Jónsdóttir. Umsjón: Sigrún Sigurðardóttir. Stjórn útsendingar: Sigurður Jónasson.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans við Hamrahlíð og Menntaskólans í Reykjavík. Lið Menntaskólans við Hamrahlíð skipa Snorri Einarsson, Stefán Eiríksson og Jón Yngvi Jóhansson. Lið Menntaskólans í Reykjavík skipa Andri Konráðsson, Þorsteinn Davíðsson og Kristrún Heimisdóttir.

Danskir heimildarþættir um ófrjósemi og þrána til að eignast barn. Þremur pörum og einni einhleypri konu er fylgt í þrjú ár.
Steinsteypuöldin er þáttaröð í umsjón Egils Helgasonar og Péturs H. Ármannssonar. Þar er rakin saga byggingarlistar og borgarskipulags í Reykjavík á tuttugustu öld. Þáttaröðin hefst 1915, í stórbrunanum þar sem eyddust fjölmörg timburhús í bænum. Þá hófst tími steinsteypuhúsanna. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.

Sumarið 2013 réðust íbúar Vestmannaeyja og Hornafjarðar í umfangsmiklar framkvæmdir í samstarfi við færustu hönnuði landsins. Þeir máluðu, smíðuðu og gerðu upp gömul hús og gáfu ný hlutverk. Umsjónarmaður: Guðrún Dís Emilsdóttir. Handrit og stjórn framleiðslu: Þórhallur Gunnarsson. Dagskrárgerð: Sigurður R. Jakobsson.

Heilinn er undarlegt fyrirbæri og hægt að hafa áhrif á hann og hegðun einstaklinga með mismunandi hætti. Fræðandi, danskur þáttur þar sem sjónhverfingarmanninum og dáleiðandanum Jan Hellesøe er fylgt eftir.

Finnsku sjónvarpskonunni Ellu Kanninen er hér fylgt eftir á ferðalagi um Suður-Ítalíu þar sem hún kynnir sér staðhætti, menningu og nýtur rómaðrar matargerðar.


Appelsínufílsi, Píví og Fílsi litli búa í helli ofan í jörðinni. Það gerist margt skemmtilegt og stundum skrýtið í ævintýraheimi þeirra.

Jojo er alveg að verða fimm ára. Hún er svo heppin að búa í nágrenni við ömmu sína. Saman bralla þær ýmislegt

Broddi og Oddlaug eru litlir broddgeltir, sem elska að fara út og kanna heiminn. Þau eru yfirleitt bestu vinir og skemmta sér saman í hinum ýmsu leikjum.

Danskir þættir um ungt par sem vill einfalda líf sitt og hefur búskap.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Þriðja þáttaröð þessara stórbrotnu náttúrulífsþátta með David Attenborough um Jörðina, náttúru hennar og dýralíf á öllum árstíðum. Þættirnir eru talsettir á íslensku en sýndir með ensku tali á RÚV 2.

Breskir heimildarþættir frá 2023. Leikarinn Martin Clunes heldur áfram ferðalagi sínu um Kyrrahafseyjarnar þar sem hann heimsækir Papúa Nýju-Gíneu, Filippseyjar og Míkrónesíu.
Norsk leikin þáttaröð frá 2025. Samísk kona bindur vonir við að 3000 gesta brúðkaup sonar hennar lyfti henni ofar í metorðastiganum. Hún fær börnin sín til að skippuleggja stórveisluna en sá hængur er á að systkinunum kemur alls ekki vel saman. Undirbúningurinn einkennist af fjölskylduerjum og algjörri ringulreið þar sem gömul leyndarmál leita upp á yfirborðið. Aðalhlutverk: Sara Margrethe Oskal, Ánte Siri og Inga Márjá Utsi. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Portúgalskir sakamálaþættir frá 2022. Ungur námsmaður finnst myrtur í smábæ í Portúgal. Dómari í málinu stendur frammi fyrir erfiðri ákvörðun þegar rannsóknin tekur óvænta stefnu. Aðalhlutverk: Margarida Vila-Nova, Nuno Lopes og Ivo Canelas. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Breskir spennuþættir frá 2024. Þegar tölvuþrjótar taka yfir stjórn næturlestar frá Glasgow til London þurfa tveir ókunnugir einstaklingar – farþegi um borð og starfsmaður hjá netöryggisstofnun – að hjálpast að við að bjarga farþegum lestarinnar og afstýra stórslysi. Aðalhlutverk: Joe Cole og Alexandra Roach. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Dönsk leikin þáttaröð frá 2024 byggð á sönnum atburðum. Kærustuparið Iben og Alex eru hluti af samfélagi ungra anarkista sem heldur til í Ungdómshúsinu á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Þegar borgin selur trúfélagi húsið og til stendur að rýma það grípaanarkistarnir í húsinu til aðgerða. Iben og Alex átta sig á að þau hafa ólíkar hugmyndir um hvaða aðferðum skal beita til að ná sínu fram. Aðalhlutverk: Thit Aaberg, Elias Budde Christensen og Sandra Guldberg Kampp. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Þriðja þáttaröð þessara stórbrotnu náttúrulífsþátta með David Attenborough um Jörðina, náttúru hennar og dýralíf á öllum árstíðum.