
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1992. Spyrill: Stefán Jón Hafstein. Dómari: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir. Stigavörður: Oddný Eir Ævarsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Fjölbrautaskólans í Breiðholti og Menntaskólans á Akureyri. Lið Fjölbrautaskólans í Breiðholti skipa Ingibjartur Jónsson, Davíð Logi Sigurðsson og Sigríður Þorvaldsdóttir. Lið Menntaskólans á Akureyri skipa Finnur Friðriksson, Magnús Teitsson og Jón Pálmi Óskarsson.
Íslensk þáttaröð í átta hlutum. Einlægar og opinskáar frásagnir fólks sem býr við aðstæður í daglegu lífi sem eru ólíkar öllu sem flestir eiga að venjast. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir. Framleiðsla: SERES hugverkasmiðja
Egill Skúlason er með MS og segir að jákvætt hugarfar, hrein fæða og heilsurækt geri honum kleift að lifa góðu og innihaldsríku lífi með sjúkdómnum.
Steinsteypuöldin er þáttaröð í umsjón Egils Helgasonar og Péturs H. Ármannssonar. Þar er rakin saga byggingarlistar og borgarskipulags í Reykjavík á tuttugustu öld. Þáttaröðin hefst 1915, í stórbrunanum þar sem eyddust fjölmörg timburhús í bænum. Þá hófst tími steinsteypuhúsanna. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Viðtals- og tónlistarþáttaröð í umsjón Jóns Ólafssonar. Jón fær til sín ýmsa tónlistarmenn í spjall og saman laða þeir fram ljúfa tóna. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Í þessum þætti er Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, gestur Jóns. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.

Önnur þáttaröð þar sem hin sænska Gina Dirawi ferðast um heiminn og heimsækir fólk sem hún heillast af. Stutt er á milli hláturs og gráts þegar viðmælendur segja frá lífshlaupi sínu.

Heilinn er undarlegt fyrirbæri og hægt að hafa áhrif á hann og hegðun einstaklinga með mismunandi hætti. Fræðandi, danskur þáttur þar sem sjónhverfingarmanninum og dáleiðandanum Jan Hellesøe er fylgt eftir.


Fyrsta þáttaröðin af hinni vinsælu Blæju. Blæja er sex ára hundur sem er stútfull af óstöðvandi gleði. Allir venjulegir hlutir geta orðið ævintýri hjá Blæju og fjölskyldu hennar.

Litlu lundasystkinin Úna og Bubbi búa á eyjunni Lundakletti. Þau lenda sífellt í nýjum ævintýrum með vinum sínum.

Jojo er alveg að verða fimm ára. Hún er svo heppin að búa í nágrenni við ömmu sína. Saman bralla þær ýmislegt.

Broddi og Oddlaug eru litlir broddgeltir, sem elska að fara út og kanna heiminn. Þau eru yfirleitt bestu vinir og skemmta sér saman í hinum ýmsu leikjum.

Danskir þættir um ungt par sem vill einfalda líf sitt og hefur búskap.

Stutt umfjöllun Sumarlandans sem var á flakki sumarið 2022 og hitti landann fyrir í sínu náttúrulega umhverfi, uppi á fjöllum, úti í garði, inni í skógi og allt um kring. Umsjón: Gísli Einarsson, Guðríður Helgadóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Elsa María Guðlaugs-Drífudóttir, Þórgunnur Oddsdóttir, Sigrún Hermannsdóttir og Helga Margrét Höskuldsdóttir.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Fólkið og fyrirtækin í landinu velta fyrir sér kostum og göllum þess að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. En önnur verkefni bíða líka; forsendur kjarasamninga eru brostnar og óvíst hvernig megi berja í brestina svo samningarnir haldi. Þjóðaratkvæðagreiðslan hefur líka vakið þjóðina til umhugsunar um fullveldi sitt og sambandið við umheiminn.
Gestir þáttarins eru Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands og sagnfræðingur, Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims hf., Halla Gunnarsdóttir formaður VR stéttarfélags og Sveinn Sölvason forstjóri Emblu Medical/Össurar.
Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Portúgalskir sakamálaþættir frá 2022. Ungur námsmaður finnst myrtur í smábæ í Portúgal. Dómari í málinu stendur frammi fyrir erfiðri ákvörðun þegar rannsóknin tekur óvænta stefnu. Aðalhlutverk: Margarida Vila-Nova, Nuno Lopes og Ivo Canelas. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Upptaka frá sumartónleikum Vínarfilharmóníunnar sem haldnir voru í Schönbrunn-hallargarðinum í Vínarborg 19. júní síðastliðinn. Stjórnandi er Lorenzo Viotti. Einsöngvari er velski óperusöngvarinn sir Bryn Terfal. Á efnisskránni eru meðal annars verk eftir Arrigo Boito, Giuseppe Verdi, Richard Wagner og Jerry Bock.
Dönsk leikin þáttaröð frá 2024 byggð á sönnum atburðum. Kærustuparið Iben og Alex eru hluti af samfélagi ungra anarkista sem heldur til í Ungdómshúsinu á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Þegar borgin selur trúfélagi húsið og til stendur að rýma það grípaanarkistarnir í húsinu til aðgerða. Iben og Alex átta sig á að þau hafa ólíkar hugmyndir um hvaða aðferðum skal beita til að ná sínu fram. Aðalhlutverk: Thit Aaberg, Elias Budde Christensen og Sandra Guldberg Kampp. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.