
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Það er Valentínusardagur! Eddi strútapabbi veit ekki hvað hann á að taka til bragðs þegar ástar-örinn, sem börnin hans gera fyrir hann, fer beint í Kráku. Hún verður strax ástfanginn af Edda en greyið Eddi veit ekki hvernig hann á að haga sér gangvart svona aðdáenda!
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Þegar hópurinn mætir hafgýgjunum hefja þau upp raust sína til að verjast álögum. Tilraun Alberts með Töfraflautuna eftir Mozart mistekst. Ormhildur bjargar öllu með því að syngja um sætu öndina sína, Alberti til lítillar gleði. Hallgrímur fylgist með Vakri í gegnum verndargripinn á leiðinni að Galdrahellinum. Álfur vaknar í bústað Björns.
Skemmtiþáttur um íslenska tungu í umsjón Braga Valdimars Skúlasonar og Vigdísar Hafliðadóttur. Þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur eru Arnþrúður Dögg Sigurðardóttir, Inga Lind Karlsdóttir, Hugi Jens Halldórsson og Sigmar Vilhjálmsson.
Tónleika- og viðtalsþáttur þar sem farið er yfir 50 ára samstarf tónlistarmannanna Magnúsar Þórs Sigmundssonar og Jóhanns Helgasonar. Í þættinum er sýnt frá stórtónleikum Magnúsar og Jóhanns í Bæjarbíói haustið 2022 þar sem þeir fluttu mörg af þekktustu lögum sínum ásamt Jóni Ólafssyni. Stjórn upptöku: Þór Freysson.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar ræðum við um bókina Mamma og ég við höfund hennar, Kolbein Þorsteinsson. Kolbeinn er sonur rithöfundarins Ástu Sigurðardóttur og í bókinni lýsir hann sviptingasamri æsku þar sem hann og systkini hans hröktust milli heimila og voru loks tekin af móðurinni. Ásta lést vegna áfengisfíknar sinnar 1971. Lóa Hjálmtýsdóttir talar um nýja bók sína sem nefnist Fnæs. Þetta er mikill prentgripur og inniheldur bráðfyndnar skopteikningar sem hún hefur gert síðustu fimm árin. Skáldið Valdimar Tómasson segir ögn frá nýrri ljóðabók sinni sem kallast Svanvængjuð þrá og fer með kvæði úr henni. Í Bókum og stöðum förum við á Drangsnes og í Bjarnarfjörð þar sem verða meðal annarra á vegi okkar höfundarnir Bergsveinn Birgisson og Jón Kalman Stefánsson. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Ótíð í víti eftir Gyrði Elíasson, nýtt úrval smásagna eftir Þórarin Eldjárn og Framtíðin á ferðinni eftir Þórhildi Ólafsdóttur.
Ferskur og hispurslaus þáttur fyrir ungt fólk. Ýmis óvenjuleg málefni krufin út frá skemmtilegu sjónarhorni í nýjum og spennandi þætti þar leitað er svara við spurningum sem brenna á ungu fólki í dag. Umsjón: Katrín Ásmundsdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson.

Norskur myndaflokkur þar sem fylgst er með venjulegu fólki sem er svo ástríðufullt í áhugamálum sínum að það liggur við brjálæði. Þáttastjórnandinn Are Sande Olsen tekur viðtöl við fólk með ótrúlegustu áhugamál og skoðar þau ofan í kjölinn.

Loft hefur svifið um loftin blá frá örófi alda án þess að lenda nokkurn tímann á jörðu. Það kynnist ævintýralegri tilvist mannsbarna í gegnum sjónaukann sinn og endurspeglar sjálft sig í þeim.
Áróra er 7 ára í dag og Loft á afmæli í ár! Það er samt löngu hætt að telja hvað það er gamalt. Sunna og Máni gera við bilað útvarp en Loft gæti nú tekið þau til fyrirmyndar.
Bolli og Bjalla lýsa hörkuspennandi íþróttakeppni þar sem krakkar keppast við að klára allskonar íþróttaþrautir.
Í þessum lokaþætti af íþróttaTÍMA mætast öll sigurliðin og keppa í tímaþraut þar sem eitt lið stendur uppi sem sigurvegari.
Liðin eiga að hlaupa í gegnum þrautabrautina eins hratt og þau geta og liðið sem fer á skemmstum tíma vinnur.
Liðin geta tekið 10 sekúndur af tímanum sínum fyrir hvern gullpening sem þau ná og fyrir hvern andstæðing sem þau hitta með bolta.
Í þessum þætti mætast liðin:
Svart og hvítt: Indiíana Mist Káradóttir & Mía Alexandra Friðriksdóttir
Regnboginn: Hrafnhildur Lilja Kristjánsdóttir & Myrra Hólm Matthíasdóttir
Tveir fellar: Jökull Máni Davíðsson & Úlfar Kári Eðvarðsson
Tvibbarnir: Lóa Lind Karlsdóttir & Fanney FJóla Karlsdóttir
Stjörnurnar: Erla María Akerlie & Birta Marín Ingólfsdóttir
Fjórir krakkar í rokkhljómsveit æfa þekkt íslenskt rokklag og semja eigið lag. Í leiðinni fræðumst við um hljóðfærin í hljómsveitinni og rokktónlistarsöguna.
Krakkarnir halda áfram að æfa Barfly með Jeff Who? og semja íslenskan texta við lagið. Við kynnumst nokkrum þekktustu gítarleikurum tónlistarsögunnar og sjáum að lokum hljómsveitina flytja lagið. Hljómsveitarmeðlimir: Elísabet Hauksdóttir, Hjörleifur Daði Oddsson, Onni Máni Sigurðsson og Þorgerður K. Hermundardóttir. Tónlistarstjóri: Sigurður Ingi Einarsson.
Sumarliði hefur tekið við heimilisfræðikennslunni og fer með nemendur sína í tímflakk, þar sem við kynnumst hinum ótrúlegustu réttum frá mismunandi tímabilum í sögunni.
Viktoríu svampkaka var mjög vinsæl á Viktoríutímanum en hún var nefnd eftir Viktoríu Bretadrottningu þar sem þetta var talið hennar uppáhalds kaka.
Kakan er einföld: tveir svampbotnar og á milli fer krem eða sætur rjómi og hindberjasulta. Flórsykri er svo dreyft yfir.
Þættir frá 2011 um íslenska tónlist í umsjá Sigtryggs Baldurssonar. Honum til halds og trausts er greiningardeild Hljómskálans, sem skipuð er þeim Guðmundi Kristni Jónssyni, öðru nafni Kidda í Hjálmum, og Braga Valdimar Skúlasyni í Baggalút. Farið er um víðan völl íslensku tónlistarsenunnar, reynt að ráða í meikdrauma, rýna í suðupotta og þræða fornar söguslóðir. Auk þess eru þekktir tónlistarmenn fengnir til að vinna nýtt efni fyrir þættina.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.
Í Landanum í kvöld ferðumst við langa leið á leik með knattspyrnuliði, við kynnum okkur gámahús, við skjótum í mark á Austurlandi og við skoðum sérhæfðan saumaskap.
Ný bresk heimildarmynd í tilefni af 100 ára afmæli Sir David Attenborough. Rætt er við Attenborough og samstarfsfólk hans um gerð þáttanna Life on Earth. Skyggnst er á bak við tjöldin og ljósi varpað á einstakan feril þessa ástsæla náttúrufræðings.
Þriðja og síðasta þáttaröð þessara sannsögulegu dönsku þátta. Árið er 1968 og þrátt fyrir velgengni carmenrúllanna á heimsvísu er fyrirtækið í fjárhagsvandræðum. Axel þarf að taka stórar ákvarðanir til að bjarga fyrirtækinu, með ófyrirséðum afleiðingum fyrir alla sem standa honum nærri. Aðalhlutverk: Morten Hee Andersen, Maria Rossing, Lars Ranthe og Nicolai Jørgensen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Kólumbísk kvikmynd frá 2018 um maríjúana-iðnaðinn í Kólumbíu á áttunda áratugnum og áhrif hans á líf frumbyggjafjölskyldu í Guajira-eyðimörkinni. Leikstjórn: Cristina Gallego og Ciro Guerra. Aðalhlutverk: José Acosta, Carmiña Martínez og Natalia Reyes. Atriði í myndinni eru ekki við hæfi barna.