
Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
Serían gerist í litríkum og súrsætum skrímsla heimi þar sem fjölbreytt skrímsli búa í sátt og sæti. Í hverjum þætti kynnumst við nýju skrímsli sem býr yfir vægast sagt sérstökum eiginleikum. Kíkjum við og sjáum hvað setur, kannski við getum kynnst þeim aðeins betur.
Þegar litlir stubbar fá hiksta hringir lítil bjalla í húsi Hikstaskrímslisins. Þá stekkur hann af stað, fer í freyðibað og lagar þannig hikstann. Eins gott að hann festist ekki í of þröngri peysu og komist þar af leiðandi ekki í bað!
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er hræddur um að dóttir hans slasi sig, ef hún djögglar of þungum hlutum. Hann verður að trufla sýninguna áður en það gerist.
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Gjóla, drottning vindanna, magnar upp ofsaveður. Hópurinn tvístrast og skessurnar þrjár ná Ormhildi. Brynhildi, Guðrúnu og Kisa tekst að bjarga henni og flýja með Alberti sem enn er í líki fisks. Álfur heldur til Myrkheima en Hallgrímur heldur áfram í þyrlu til að eyðileggja Galdrahellinn. Albert losnar úr álögum og ljóstrar því upp að Ormhildur er dvergur.
Hildur Vala Baldursdóttir tekur á móti góðum gestum í nýjum skemmtiþætti þar sem boðið er upp á skemmtiatriði í beinni útsendingu í bland við upptekin atriði og lifandi tónlistarflutning. Tónlistarstjóri: Magnús Jóhann Ragnarsson. Leikstjórn: Allan Sigurðsson, Hannes Þór Arason og Hannes Þór Halldórsson. Framleiðsla: Atlavík. Stjórn útsendingar: Vilhjálmur Siggeirsson.
Stjórnmál á Íslandi hafa séð okkur fyrir skemmtiefni síðustu áratugi. Gestastjórnendur eru Halldóra Geirharðsdóttir og Bergur Ebbi Benediktsson.
Heimildarþættir þar sem Halla Ólafsdóttir skoðar hvers vegna fólk flytur landshorna og heimshorna á milli - og hvað það er sem fólk kallar „heima“.
Svitlana og Tymofii Pylypenko eru tvö af tæplega fimm þúsund Úkraínubúum sem hafa flúið stríðið til Íslands. Þau vildu komast sem lengst frá átökunum. Við hittum þau þegar þau eru nýkomin til landsins og svo aftur ári síðar. Við kynnumst Denis Grbic sem flúði stríðið í Júgóslavíu sem barn og við hittum Najlaa Attaallah frá Gaza sem þurfti að vera fjarri börnum sínum í ellefu mánuði til að tryggja þeim öruggt líf. Við sláumst einnig í för með hópi fólks frá Venesúela sem vill leggja sitt af mörkum til samfélagsins á meðan þau bíða afgreiðslu umsókna sinna um vernd hér á landi.
Sænskir heimildarþættir frá 2023 um fornleifafundi í Svíþjóð. Bátagrafir frá víkingaöld sem fundust fyrir utan Uppsali hafa leitt ýmislegt í ljós, bæði um ferðalög á víkingaöld og stríðsmenn Eiríks sigursæla Svíakonungs. Þar að auki er fjallað um fjársjóð sem fannst í skógi nálægt Alingsås sem reyndist stærsti bronsaldarfundur í Svíþjóð.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Við kíkjum á námskeið um ástarsögur hjá Endurmenntunarstofnun Háskólans. Leiðbeinandi þar er Katrín Jakobsdóttir en meðal höfunda sem koma við sögu eru Guðrún frá Lundi, Ingibjörg Sigurðardóttir og Snjólaug Bragadóttir. Skúli Thoroddsen ræðir við okkur um endurminningabók sína sem nefnist Dorgað í djúpi hugans. Þar segir meðal annars frá æsku og uppeldi í Hlíðunum í Reykjavík og sumardvölum hjá þeim fræga bónda Moniku á Merkigili. Arndís Þórarinsdóttir fer með kvæði úr nýrri ljóðabók sinni sem heitir Köngurváfa. Í Bókum og stöðum förum við norður í Öxnadal en þar koma til dæmis við sögu Jónas Hallgrímsson, Jón á Bægisá og Tryggvi Emilsson. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Skrifað í sand eftir Karl Sigurbjörnsson biskup, Grænland og fólkið sem hvarf eftir Val Gunnarsson og Klingsor eftir Torgny Lindgren.
Ferskur og hispurslaus þáttur fyrir ungt fólk. Ýmis óvenjuleg málefni krufin út frá skemmtilegu sjónarhorni í nýjum og spennandi þætti þar leitað er svara við spurningum sem brenna á ungu fólki í dag. Umsjón: Katrín Ásmundsdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson.
Góð hönnun er hvarvetna í kringum okkur en það er slæm hönnun líka. Finnski hönnuðurinn og teiknarinn Kasper Strömman skoðar hér áhrif lélegrar hönnunar á daglegt líf okkar og leitar leiða til að bæta úr þar sem þess er þörf.

Bolli og Bjalla lýsa hörkuspennandi íþróttakeppni þar sem krakkar keppast við að klára allskonar íþróttaþrautir.
Bjarmi fer í íþróttir í skólanum sínum og Bolli og Bjalla laumast með honum til að kíkja á íþróttaTÍMA.
Þar búa þau til æsispennandi keppni á milli tveggja liða sem mætast í þrem þrautum: Svampasundi, Buxnaflækju og Kúlustigakasti.
Liðin keppast við að safna stigum og annað liðið stendur upp úr sem sigurvegari.
Í þessum þætti mætast liðin Stjörnurnar og FHingarnir.
Keppendur eru:
Tristan Ingi Dagsson
Magni Leon Ágústsson
Erla María Akerlie
Birta Marín Ingólfsdóttir
Þau Ylfa og Máni standa vaktina í eldhúsinu og kenna okkur hvernig á að elda og baka ýmislegt góðgæti. Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir. Umsjón: Ylfa Blöndal og Hilmar Máni Magnússon.
Ylfa og Máni útbúa pizzaveislu.
Pizzan hans Mána:
1 tilbúið pizzadeig
pizzasósa
rifinn pizzaostur
oreganó krydd
ananas
pepperoni
skinka
beikon
Pizzan hennar Ylfu:
1 tilbúið pizzadeig
pizzasósa
buffalo mozzarella
ferskt oreganó
fersk basilika
Tvær leiknar stuttmyndir úr smiðju ungra höfunda sem framleiddar voru í tengslum við verkefnið Sögur hjá KrakkaRÚV. Handritin að stuttmyndunum tveimur, Skrýtna kaffiævintýrið og Óskahálsmenið, voru valin í handritasamkeppni Sagna og eru höfundarnir á aldrinum 9-12 ára.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.
Í Landanum í kvöld fræðumst við um íslenskt smáforrit sem hannað er til að hjálpa fólki með fíknisjúkdóma. Við hittum hund sem eru í heimilisleit. Við kynnum okkur íþróttaverkefnið Allir með og við skoðum jökul með augum myndlistarfólks.
Nýir íslenskir heimildarþættir eftir Láru Zulima Ómarsdóttur. Hvernig er að búa í nánum tengslum við náttúruna? Hvað er það í náttúrunni sem kallar svo sterkt á suma? Lára kynnist viðmælendum sínum og fer með þeim á þeirra uppáhaldsstaði, þar á meðal leynistaði sem fáir þekkja. Hún sýnir svo bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard þessar einstöku náttúrugersemar, en hann sérhæfir sig í ljósmyndun á köldum slóðum. Framleiðsla: Zulima ehf.
Svandís Sverrisdóttir sleit barnsskónum í Papey og ólst þar upp hjá afa sínum. Eyjan er úti fyrir Hamarsfirði á Austurlandi og var eina byggða eyjan á austurströnd Íslands þar til hún fór í eyði fyrir nokkrum áratugum. Svandís sýnir okkur Papey, segir frá lífinu í eynni á árum áður og fer með okkur á þann stað sem hún hefur ljósmyndað oftar en nokkurn annan. Þar að auki fer bandaríski ljósmyndarinn og ævintýramaðurinn Chris Burkard með Láru út í Papey.
Þriðja og síðasta þáttaröð þessara sannsögulegu dönsku þátta. Árið er 1968 og þrátt fyrir velgengni carmenrúllanna á heimsvísu er fyrirtækið í fjárhagsvandræðum. Axel þarf að taka stórar ákvarðanir til að bjarga fyrirtækinu, með ófyrirséðum afleiðingum fyrir alla sem standa honum nærri. Aðalhlutverk: Morten Hee Andersen, Maria Rossing, Lars Ranthe og Nicolai Jørgensen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Sannsöguleg dönsk kvikmynd frá 2023 í leikstjórn Puk Grasten. Rithöfundurinn Leonora hefur slitið öllu sambandi við foreldra sína eftir erfiða barnæsku. Þegar hún fréttir að móðir hennar sé með ólæknandi krabbamein neyðist hún til að horfast í augu við fortíðina. Myndin er byggð á metsölubók eftir Leonoru Christinu Skov. Aðalhlutverk: Frederikke Dahl Hansen, Jens Albinus og Sarah Boberg. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.