13:55
Kiljan
8. apríl 2026

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Við kíkjum á námskeið um ástarsögur hjá Endurmenntunarstofnun Háskólans. Leiðbeinandi þar er Katrín Jakobsdóttir en meðal höfunda sem koma við sögu eru Guðrún frá Lundi, Ingibjörg Sigurðardóttir og Snjólaug Bragadóttir. Skúli Thoroddsen ræðir við okkur um endurminningabók sína sem nefnist Dorgað í djúpi hugans. Þar segir meðal annars frá æsku og uppeldi í Hlíðunum í Reykjavík og sumardvölum hjá þeim fræga bónda Moniku á Merkigili. Arndís Þórarinsdóttir fer með kvæði úr nýrri ljóðabók sinni sem heitir Köngurváfa. Í Bókum og stöðum förum við norður í Öxnadal en þar koma til dæmis við sögu Jónas Hallgrímsson, Jón á Bægisá og Tryggvi Emilsson. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Skrifað í sand eftir Karl Sigurbjörnsson biskup, Grænland og fólkið sem hvarf eftir Val Gunnarsson og Klingsor eftir Torgny Lindgren.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 46 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,