Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Í dag eru fjögur ár frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu og hrundu af stað atburðarás sem átti þátt í að breyta skipan heimsmála. Innrásinni átti að vera lokið á nokkrum dögum en enn sér ekki fyrir endann á stríðinu, sem hefur kostað mörg hundruð þúsund mannslíf og hrakið milljónir á vergang. Jón Ólafsson prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðingur í málefnum Rússlands fer yfir stöðuna og friðarhorfur.
Um 6 milljónir Úkraínumanna hafa flúið land frá innrás Rússa. Um 6.500 þeirra hafa leitað hælis hér á landi. Hjá Rauða krossinum á Íslandi starfa 30 úkraínskir sjálfboðaliðar í móttökustarfi. Þar á meðal Iryna Hordiienko, sem var atvinnudansari og sjónvarpsstjarna í heimalandinu þegar lífið breyttist í einu vetfangi. Við ræðum við hana.
Við heyrum líka í Kate de Pury, yfirmanni Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva - EBU - í Moskvu. Fjölmiðlafrelsi í Rússlandi er afar skert og gagnrýnin umfjöllun um stríðið þar í landi lítil sem engin. En almenningur er orðinn langþreyttur á stríðinu fórnarkostnaði þess. Hann vill að því ljúki sem fyrst - en á forsendum Rússa.
Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.
Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir var nýverið valin ein af 100 áhrifamestu konum heims hjá BBC fyrir baráttu sína fyrir réttindum transfólks. Hún er gestur Sigmars Guðmundssonar að þessu sinni.
Danskir heimildarþættir þar sem sex ungmenni sem þjást af streitu taka þátt í tilraun þar sem þau slökkva á símunum sínum og flytjast út í skóg. Getur dvölin í náttúrunni dregið úr streitueinkennum á aðeins sex dögum?
Heimildarþættir um 40 ára sögu spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, sem hóf göngu sína árið 1986. Rætt er við fyrrverandi keppendur, spyrla og spurningahöfunda um sögu þáttanna og þróun tíðarandans og eftirminnileg augnablik eru rifjuð upp. Dagskrárgerð: Sturla Holm Skúlason.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.
Í Landanum í kvöld hittum við hjón frá Tennessee sem opnuðu veitingastað á Hauganesi.
Við förum í heimsókn í Skynheima á Ísafirði þar sem sem börn læra að nota skynfærin, hittum listmálara á Reyðarfirði og kíkjum á stemmninguna til eldri borgara á Ólafsvík.

Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Við ræðum við hjúkrunarfræðing á bráðamóttöku Landspítalans, sem upplifir sig ekki öruggan í vinnunni eftir að hafa smitast af berklum í byrjum mánaðar.
Skortur á legu- og hjúkrunarrýmum hefur bitnað rækilega á bráðmóttökunni undanfarin ár, með tilheyrandi álagi á starfsfólk og skertu öryggi sjúklinga. Í dag bætist enn eitt atriðið á listann, eftir að Slökkvlið höfuðborgarsvæðisins gerði athugasemdir við brunavarnir á bráðamóttökunni. Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, fer yfir stöðuna með okkur.
Við vendum kvæði okkar í kross í lok þáttar og förum á kínverska danssýningu, sem haldin var hér á landi í tilefni af því að kínverska nýárið gekk í garð.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar segjum við frá nýrri bók þar sem fjallað er um ævi, list og starf Drífu Viðar. Drífa var gríðarlega fjölhæf kona, stundaði einkum málaralist en fékkst einnig við ritstörf, listgagnrýni og fleira. Hún lést fyrir aldur fram, aðeins 51 árs árið 1971. Við ræðum við tvo ritstjóra bókarinnar, Kristínu Guðrúnu Jónsdóttur og Elísabetu Gunnarsdóttur. Við Kolbrún Bergþórsdóttir og Ingibjörg Iða Auðunardóttir förum á Bókamarkaðinn og veljum bækur sem vekja áhuga okkar. Una Björk Kjerúlf fékk um daginn hin virtu bókmenntaverðlaun Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir kvæði sitt Framlag mitt í minningabanka nærri útdauðra hljóða - við spjöllum við hana í þættinum og hún flytur ljóðið. Í dagskrárliðnum Bókum og stöðum förum við norður í Reykjarfjörð á Ströndum en þar var forðum tíð miðstöð hvalveiða og síðar hákarlaveiða.
Breskt drama í sex þáttum frá 2025 um húsmóður í Lundúnum sem stofnar næturklúbb í Soho-hverfi við lok seinni heimsstyrjaldar til að framfleyta sér og dætrum sínum. Rekstrinum fylgja tíðir árekstrar við bæði glæpagengi og lögregluna. Aðalhlutverk: Julianne Nicholson, Ian Bonar og Fiona Button. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 14 ára.

Norsk heimildarmynd frá 2025. Þann 23. febrúar 2022 lögðu 15 hljóðfæraleikarar úr úkraínsku kammersveitinni Kyiv Soloists af stað í tónleikaferð til Ítalíu. Daginn eftir vöknuðu þau upp við fréttir af innrás Rússa í heimaland þeirra. Þau ákveða að framlengja tónleikaferðalagið til að efla vitund um stöðuna í Úkraínu. Leikstjóri: Trond Kvig Andreassen.
Sænskir leiknir heimildarþættir frá 2023. Farið er yfir sögu Svíþjóðar frá ísöld til dagsins í dag. Yfir 300 sérfræðingar komu að gerð þessarar tíu hluta þáttaraðar þar sem sögulegir viðburðir eru endurskapaðir. Sögumaður: Simon J. Berger. Leikstjórar: Niklas Fröberg og Niklas Vidinghoff.
Þættir um bestu handboltalið Íslands. Hópur sérfræðinga hefur valið sjö handboltalið í karla- og kvennaflokki sem koma til greina sem besta handboltalið Íslands. Áhorfendum gefst kostur á að velja besta handboltalið Íslands í sérstökum lokaþætti. Dagskrárgerð: Hilmar Björnsson og Vilhjálmur Siggeirsson.