Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Í dag eru fjögur ár frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu og hrundu af stað atburðarás sem átti þátt í að breyta skipan heimsmála. Innrásinni átti að vera lokið á nokkrum dögum en enn sér ekki fyrir endann á stríðinu, sem hefur kostað mörg hundruð þúsund mannslíf og hrakið milljónir á vergang. Jón Ólafsson prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðingur í málefnum Rússlands fer yfir stöðuna og friðarhorfur.
Um 6 milljónir Úkraínumanna hafa flúið land frá innrás Rússa. Um 6.500 þeirra hafa leitað hælis hér á landi. Hjá Rauða krossinum á Íslandi starfa 30 úkraínskir sjálfboðaliðar í móttökustarfi. Þar á meðal Iryna Hordiienko, sem var atvinnudansari og sjónvarpsstjarna í heimalandinu þegar lífið breyttist í einu vetfangi. Við ræðum við hana.
Við heyrum líka í Kate de Pury, yfirmanni Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva - EBU - í Moskvu. Fjölmiðlafrelsi í Rússlandi er afar skert og gagnrýnin umfjöllun um stríðið þar í landi lítil sem engin. En almenningur er orðinn langþreyttur á stríðinu fórnarkostnaði þess. Hann vill að því ljúki sem fyrst - en á forsendum Rússa.
