Brot úr menningarumfjöllun liðinnar viku. Fjallað á snarpan og líflegan hátt um það sem efst er á baugi hverju sinni í menningar- og listalífinu, jafnt með innslögum, fréttaskýringum, gagnrýni, pistlum og umræðu. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson og Halla Oddný Magnúsdóttir.
Kvikmyndin Wolka eftir Árna Ólaf Ásgeirsson verður frumsýnd fljótlega. Kvikmyndin er á pólsku en er mest megnis tekin upp á Íslandi og skartar einni stærstu kvikmyndastjörnu Póllands í aðalhlutverki. Bergsteinn ræddi við leikmyndahönnuð myndarinnar, Mörtu Luizu Macuga og leikkonuna Olgu Boladz.
Dægurþættir frá árunum 1989-1994.
Þættir frá 2013 þar sem fylgst er með rannsóknum vísindamanna við Háskóla Íslands á vettvangi þar sem aðstæður eru býsna fjölbreyttar. Dagskrárgerð og stjórn upptöku er í höndum Jóns Arnar Guðbjartssonar.
Í þessum þætti kynnumst við rannsóknum vísindamanna við Háskóla Íslands á skipsflaki á hafsbotni. Þorskurinn kemur við sögu en hann hefur mótað mannlíf frá landnámi fram á okkar daga. Þorskurinn hefur valdið deilum en líka veitt listamönnum okkar innblástur.
Gina Dirawi ferðast um allan heim og hittir fólk sem hún heillast af. Stutt er á milli hláturs og gráts þegar viðmælendur segja frá lífi sínu.
Spurningaþættir í stjórn Felix Bergssonar og dr. Gunna. Í þáttunum takast íslenskar hljómsveitir á í æsispennandi spurningaleik, þar sem gáfur og viska, ásamt snerpu, atgervi og heppni ráða niðurstöðunni - já og tónlistarhæfileikar. Sextán hljómsveitir taka þátt í keppninni að þessu sinni. Stjórn upptöku: Helgi Jóhannesson.
Íslensk þáttaröð í sex hlutum um dans. Þar er leitað svara við spurningum um hvers vegna fólk dansar, hvernig dansgleðin kviknar og hvers vegna sumir fæðast flinkir dansarar en aðrir taktlausir flækjufætur. Farið verður yfir sögu dansins á Íslandi, mismunandi danstegundir kannaðar og við kynnumst því hvernig dansinn brýst fram á ólíklegustu stöðum. Umsjón: Guðrún Sóley Gestsdóttir. Framleiðsla: Skot.
Í fyrsta þætti skoðum við hvernig dansinn fylgir okkur frá fæðingu og jafnvel fyrr. Við komumst að því hvenær við tökum fyrstu danssporin og skoðum hvers vegna sumir eru með næma tilfinningu fyrir takti en aðrir taktlausir með öllu. Einnig fjöllum við um hvernig dansinn breytist frá æsku til unglings- og fullorðinsára og komumst að því hver er aðalávinningurinn af honum.
Þáttaröð um hamfarahlýnun og hlutverk okkar sjálfra í baráttunni við loftslagsbreytingar. Hvers vegna reynist oft erfitt að gera breytingar sem við vitum að eru mikilvægar og jafnvel nauðsynlegar? Hvernig verðum við loftslagssnjallari?
Norskir sérfræðingar standa neytendavaktina í fræðandi þáttaröð um heilsu, lífsstíl og neytendamál.
Þáttur um lífið í landinu. Landinn ferðast um og hittir fólk sem fæst við margt áhugavert og skemmtilegt. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórgunnur Oddsdóttir Halla Ólafsdóttir og Arnar Björnsson. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson, Magnús Atli Magnússon og Jóhannes Jónsson.
Í þættinum fræðumst við um ferðaveiki, hverskonar, við fáum okkur sushi á Seyðisfirði, við setjum upp bílslys, skoðum Persónulega safnið og við hlustum á Karlakór syngja í helli.
Viðmælendur:
Birna Svanbjörnsdóttir
Davíð Kristinsson
Deborah Jacob
Einir Viðar Björnsson
Gísella Hannesdóttir
Guðfinna Sverrisdóttir
Guðmundur Guðlaugsson
Guðni Halldórsson
Hannes Petersen
Jóhannes Baldursson
Javier Corcoles
Keith Preston
María Carmen Magnúsdóttir
Margrét Rós Harðardóttir
Paolo Gargiulo
Símon Geir Geirsson
Þórður Sigurðarson
Holly er 13 ára stelpa sem syngur og semur sín eigin lög. Hún er umkringd vinum og fjölskyldu en dreymir um að bjarga heiminum. Þó hún þurfi að byrja í garðinum sínum.
Önnur sería þar sem fylgst er með uppátækjum Lúkasar og öllu því sem gerist í hugarheimi hans.
Þau Ylfa og Máni standa vaktina í eldhúsinu og kenna okkur hvernig á að elda og baka ýmislegt góðgæti.
Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir
Umsjón: Ylfa Blöndal og Hilmar Máni Magnússon.
Í þessum þætti töfra Ylfa og Máni fram æðislega góðar og einfaldar ræskrispískökur.
Hér er uppskriftin:
200gr suðusúkkulaði
100 gr mjúkt smör
100 gr síróp
120 gr ræs krispís/kornflex
Aðferð:
Bræddu saman súkkulaði og smjör í potti við lágan hita.
Bættu sírópi og ræs krispís / kornflexi saman við
Settu deigið í möffinsform og/eða lítið kökuform.
Kældu í 1 klst
Bræddu hvítt súkkulaði í potti við lágan hita og skreyttu kökuna þegar hún er orðin köld.
Miðaldafréttir eru fyndnir og fræðandi þættir sem KrakkaRÚV gerði í samstarfi við Árnastofnun. Í tilefni þess að árið 2021 eru 50 ár liðin frá heimkomu handritanna frægu ætla þeir Jakob Birgisson og Snorri Másson að segja okkur hvað er svona merkilegt við þessi handrit og hvernig lífið var á Íslandi á öldum áður.
Snorri og Jakob velta því fyrir sér hvernig það hafi verið þegar að pappírinn kom til landsins.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Krakkafréttir dagsins: 1. 16 ára opnaði matarvagn 2. Valdefla stúlkur í Síerra Leóne 3. Hvolpasveit á námskeiði
Umsjón: Gunnar Hrafn Kristjánsson
Íslensk tónlistarmyndbönd.
Lag: Er þetta ást?
Flytjandir: Unnsteinn Manúel
Höfundar: Páll Óskar Hjálmtýsson og Örlygur Smári
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Brot úr menningarumfjöllun liðinnar viku. Fjallað á snarpan og líflegan hátt um það sem efst er á baugi hverju sinni í menningar- og listalífinu, jafnt með innslögum, fréttaskýringum, gagnrýni, pistlum og umræðu. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson og Halla Oddný Magnúsdóttir.
Fornleifafræðirannsókn verður að tónverki, sem tekið er upp á hljómplötu sem síðar er flutt á tónleikum. Þetta var þróunin hjá listahópnum Dalalæðu sem nýverið gaf út plötuna Dysjar sem var flutt á tónleikum í Hvalsneskirkju. Guðrún Sóley ræddi við Hannes Helgason, höfund og tónlistarmann, Jóhannes Birgi Pálmason, höfund, Steinunni Kristjánsdóttur, prófessor í fornleifafræði, og tónlistarmennina Magnús Trygvason Elíassen og Jóel Pálsson.
Matthías Már Magnússon tekur á móti tónlistarfólki sem veitir innsýn í líf sitt og flytur nokkur af vinsælustu lögunum sínum í bland við nýjar ábreiður. Í þáttunum fá áhorfendur að sjá nýjar hliðar á mörgu af áhugaverðasta tónlistarfólki landsins. Þættir frá 2021.
Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.
Veðurfréttir
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Krakkafréttir dagsins: 1. 16 ára opnaði matarvagn 2. Valdefla stúlkur í Síerra Leóne 3. Hvolpasveit á námskeiði
Umsjón: Gunnar Hrafn Kristjánsson
Íslensk tónlistarmyndbönd.
Lag: Er þetta ást?
Flytjandir: Unnsteinn Manúel
Höfundar: Páll Óskar Hjálmtýsson og Örlygur Smári
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.