20:50
Vikan með Gísla Marteini
09.04.2021

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.

Gestir þáttarins að þessu sinni voru þau Bergur Ebbi rithöfundur og uppistandari, Unnur Eggertsdóttir leikkona og Sigmundur Ernir Rúnarsson dagskrár- og ritsjóri sjónvarpsstöðvarinnar Hringbraut.

Gísli Marteinn fór yfir Fréttir Vikunnar og Berglind Pétursdóttir setti sig í spor þeirra sem dvöldu á sóttvarnarhóteli nýverið.

JóiPé, RAKEL og CeaseTone lokuðu þættinum með fyrsta sumarsmelli ársins, Ég var að spá.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 45 mín.
Bein útsending.
,