Mynd: Umhverfisstofnun - Aðsend mynd

Athugið þessi frétt er meira en mánaðargömul.
Töluverður fjöldi olíublautra fugla finnst í Eyjum
27.02.2020 - 17:24
Töluvert hefur borið á olíublautum sjófuglum í Vestmannaeyjum undanfarna daga og vikur. Á vef Umhverfisstofnunar segir að flestir fuglarnir hafi fundist við höfnina í Heimaey og í Klaufinni, rétt við Stórhöfða. Ástandið hefur verið viðvarandi í óvenju langan tíma eða allt frá áramótum.
Einnig hafa fundist olíublautar langvíur í Reynisfjöru, en Umhverfisstofnun segir óljóst hvort þessi mál tengjast. Fjöldi fugla sem fundist hefur á þessum stöðum skiptir nú nokkrum tugum.
Af þessu tilefni fór áhöfnin á TF-EIR, þyrlu Landhelgisgæslunnar, með fulltrúa Umhverfisstofnunar í eftirlitsflug á þriðjudag í leit að uppruna mengunarinnar. Flogið var umhverfis allar eyjar Vestmannaeyja og að Reynisfjöru en ekkert fannst í þeim leiðangri.
Umhverfistofnun mun áfram vinna í því að leita að uppruna mengunarinnar, meðal annars með aðstoð Landhelgisgæslu Íslands og EMSA, Siglingaöryggisstofnun Evrópu.