Eitt af útsendingamöstrum á fjallinu Þorbirni fauk niður í gærkvöld og því næst ekki sjónvarp í gegnum loftnet í Grindavík sem stendur. Hægt er að nálgast útsendingar RÚV í gegnum RÚV appið og vefinn ruv.is.
Ekki verður unnt að reisa annað mastur og lagfæra að svo stöddu vegna veðurs. Stefnt er að því að fara við fyrsta tækifæri, eða þegar veður leyfir, og útlit fyrir að laugardagurinn geti gengið.