Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna voru tilkynntar við hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum í dag.
Tilnefnt er í þremur flokkum. Flokki fræðirita og bóka almenns efnis, flokki barna- og ungmennabóka og flokki fagurbókmennta.
Verðlaunin verða veitt um mánaðarmótin janúar-febrúar á komandi ári. Hér má sjá hvaða bækur eru tilnefndar.
Fræðirit og bækur almenns efnis
Karl Aspelund og Terry Gunnell, ritstjórar
Málarinn og menningarsköpun: Sigurður Guðmundsson og Kvöldfélagið 1858-1874
Útgefandi: Þjóðminjasafn Íslands og Bókaútgáfan Opna
Steinunn Kristjánsdóttir
Leitin að klaustrunum: Klausturhald á Íslandi í fimm aldir
Útgefandi: Sögufélag í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands
Sumarliði R. Ísleifsson, ritstjóri
Líftaug landsins: Saga íslenskrar utanlandsverslunar 900-2010
Útgefandi: Skrudda
Unnur Þóra Jökulsdóttir
Undur Mývatns: -um fugla, flugur, fiska og fólk
Útgefandi: Mál og menning
Vilhelm Vilhelmsson
Sjálfstætt fólk: Vistarband og íslenskt samfélag á 19. öld
Útgefandi: Sögufélag
Dómnefnd skipuðu:
Hulda Proppé, formaður nefndar, Knútur Hafsteinsson og Þórunn Sigurðardóttir.
Barna- og ungmennabækur
Áslaug Jónsdóttir, Rakel Hemsdal og Kalle Güettler
Skrímsli í vanda
Útgefandi: Mál og menning
Elísa Jóhannsdóttir
Er ekki allt í lagi með þig?
Útgefandi: Vaka-Helgafell
Hjörleifur Hjartarson og Rán Flygenring
Fuglar
Útgefandi: Angústúra
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Vertu ósýnilegur: Flóttasaga Ishmaels
Útgefandi: Mál og menning
Ævar Þór Benediktsson
Þitt eigið ævintýri
Útgefandi: Mál og menning
Dómnefnd skipuðu:
Sigurjón Kjartansson, formaður nefndar, Hildigunnur Sverrisdóttir og Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir.
Fagurbókmenntir
Bergþóra Snæbjörnsdóttir
Flórída
Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa
Jón Kalman Stefánsson
Saga Ástu
Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa
Kristín Eiríksdóttir
Elín, ýmislegt
Útgefandi: JPV útgáfa
Kristín Ómarsdóttir
Kóngulær í sýningargluggum
Útgefandi: JPV útgáfa
Ragnar Helgi Ólafsson
Handbók um minni og gleymsku
Útgefandi: Bjartur
Dómnefnd skipuðu:
Helga Ferdinandsdóttir, formaður nefndar, Bergsteinn Sigurðsson og Steingrímur Þórðarson.