
Hætta skapaðist við leitina í Sölvadal
Aðgerðarstjórn tók ákvörðun að draga úr leit í ánni sjálfri í nótt en viðbragðsaðilar verða við leitarstörf við ánna í nótt og leit verður áframhaldið í fyrramálið af fullum krafti. Í tilkynningu frá lögreglu segir að útlit sé fyrir að betra veður verði á morgun til leitar.
Björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar hafa verið sleitulaust við störf síðan í gærkvöldi. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti í nótt fleiri björgunarmenn og kafara norður og björgunarsveitir víðast hvar af landinu komu einnig akandi í morgun til aðstoðar. Meðal annars var notast við hunda til leitar meðfram ánni.
Hátt í 50-60 manns hafa verið við störf hverju sinni á vettvangi við leit og björgun og hefur þeim verið fjölgað jafnt og þétt yfir daginn eftir því sem fleiri björgunarsveitir hafa komið á svæðið. Alls hafa um 200 viðbragðsaðilar komið beint eða óbeint að leitinni í dag. Fraktvél frá danska flughernum notuð til að flytja viðbótar búnað, björgunarsveitarmenn og menn frá Landhelgisgæslunni norður til Akureyrar til aðstoðar. Styrkur til leitarinnar jókst um 41 mann við það, en þörf var á sérhæfðum búnaði og sérhæfðum leitarmönnum til að skipta út fyrir þá sem höfðu staðið vaktina við hin ýmsu störf. Vélin sem kom frá Keflavík lenti á Akureyrarflugvelli nú seinnipart dags.