
Framferði þeirra sem leika innfædda grátt óverjandi
Þetta sagði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, í ávarpi sínu þegar hann heimsótti álverið í Straumsvík á föstudaginn. Guðni segir frá heimsókn sinni á Facebook og vitnar í ræðu sína þar sem hann ræddi Samherjaskjölin og afhjúpun Kveiks.
Verðum að geta borið höfuð hátt í útlöndum
„Við Íslendingar verðum að geta borið höfuðið hátt í útlöndum, ekki síst við sem höfum notið trausts til trúnaðarstarfa fyrir land og þjóð,“ sagði Guðni. „Við viljum eiga okkar flaggskip og lofa þá sem þar eru á stjórnpalli, fólk í heimi menningar og mennta, íþrótta og lista, fólk í heimi hátækni og nýsköpunar, fólk í heimi iðnaðar og útvegs.“
„ Lengi höfum við stært okkur af forystuhlutverki til sjávar, þekkingu okkar og reynslu og vilja til að vinna með öðrum, öllum til hagsbóta,“ sagði Guðni. „Þetta hef ég gert nýlega, svo dæmi séu tekin, í heimsóknum ytra og þegar ég tók á móti nýjum sendiherra Namibíu.“
„Kæru landar: Ef við, sem komum fram í þágu Íslands, eigum að geta lofað frumkvæði og dugnað í útvegi og öðrum greinum íslensks atvinnulífs, verðum við að sjá í verki að þar sé unnið af heilindum. Þeirri heildarmynd er vel hægt að halda við, sé vilji fyrir hendi.“
Færslu Guðna má sjá hér að neðan: