Heimsglugginn
Þetta ræddu Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson við Boga Ágústsson í Heimsglugga vikunnar. Víðtæk mótmæli í Íran voru einnig til umræðu. Þau hófust eftir að lát ungrar konu spurðist í síðustu viku. Hún var í haldi ,,Siðgæðislögreglu" klerkastjórnarinnar í landinu. Yfirvöld segja að konan, Mahsa Amini, hafi fengið hjartaáfall en allt bendir til þess að hún hafi verið barin til bana. Guardian segir sneiðmyndir af höfði Amini sýna beinbrot, blæðingu inn á heila og heilabjúg.
Braut reglur um klæðaburð kvenna
Amini var handtekin fyrir meint brot á ströngum lögum klerkastjórnarinnar um klæðaburð kvenna, slæða hennar hafi ekki verið í samræmi við reglurnar að mati ,,siðgæðislögreglunnar". Mótmælt hefur verið í flestum borgum og bæjum landsins og samstaða kvenna virðist mikil. Margir óttast að klerkastjórnin eigi eftir að bregðast við af mikilli grimmd eins og hún hefur gert áður. Þannig voru víðtæk mótmæli 2009 brotin á bak aftur með mikilli hörku þar sem tugir manna féllu og þúsundir voru hnepptar í fangelsi.