
Engin vakt á þyrlu Gæslunnar í dag
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, sagði í samtali við fréttastofu að enginn flugstjóri hefði verið á vakt í dag vegna veikinda og ekki hefði tekist að fá flugstjóra á frívakt í staðinn. „Því gat þyrlusveitin ekki sinnt þessu útkalli,“ segir Ásgeir.
Hann segir að alltaf sé allt reynt til að fullmanna áhöfn og að það sé alvarleg staða þegar það sé ekki hægt. „Við reyndum allt sem hægt var í stöðunni, en það gekk ekki.“
Að sögn Ásgeirs starfa sex flugstjórar á þyrlum Gæslunnar, þar af eru tveir staðsettir á Norðurlandi. „Það voru þrír á frívakt og því miður gat enginn sinnt kallinu.“
Hefur þetta gerst áður? „Ég veit ekki til þess, mig rekur ekki minni til þess,“ segir Ásgeir.
Fram hefur komið í fréttum að sífellt erfiðara hafi verið að manna vaktir á þyrlum Gæslunnar, en flugmenn þeirra og flugstjórar hafa verið án kjarasamnings í á þriðja ár. Spurður hvort það ástand sem nú er uppi tengist kjarasamningum segir Ásgeir engar vísbendingar hafa um það.