
Tvö ný tilboð í byggingu flugstöðvar á Akureyri
Tilboðin bárust frá verktakafyrirtækjunum Húsheild og Hyrnu. Tilboð Húsheildar hljóðar upp á tæpar 865 milljónir króna en tilboð Hyrnu upp á rúmar 810 milljónir.
Í fyrra tilboðinu í september bauð Húsheild 910 milljónir í verkið, sem var talsvert yfir kostnaðaráætlun og því var tilboðinu hafnað.
Verkefnið felur í sér viðbyggingu við núverandi flugstöð og breytingu á húsnæði flugstöðvarinnar og nánasta umhverfi. Fyrsta skóflustunga að viðbyggingunni var tekin í júní.
Verklok áætluð sumarið 2023
„Nú verður farið ítarlega yfir þessi tvö tilboð sem bárust,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla. „Verkefnið sem hér um ræðir er 1.100 fermetra viðbygging við flugstöðina með góðri aðstöðu fyrir toll og lögreglu, fríhöfn og veitingastað. Áætlað er að heildarverkefninu verið lokið síðsumars 2023.“