Mjólkurbíll valt út af veginum fyrir neðan Hranastaði í Eyjafjarðarsveit í hádeginu og hafnaði á hvolfi. Bílstjórinn komst út úr bílnum af sjálfsdáðum og slapp ómeiddur. Að sögn slökkviliðsmanna á vettvangi þykir það mildi að bílstjórinn hafi ekki slasast. Mun meira tjón varð á bílnum farþegamegin en þar sat enginn.
Mikið af mjólk fór til spillist og rann út úr tanki bílsins. Hvítur lækur hefur myndast við bílinn því mjólk streymdi úr tönkum hans. Neyðarlínu barst tilkynning um slysið klukkan 12.20.