
Heilsugæslan boðar 90 ára og eldri í bólusetningu í dag
Fólk fær boð í bólusetningu með SMS-skilaboðum og er beðið um að fylgja tímasetningu sem þar kemur fram. Þau sem voru bólusett 2. febrúar en hafa ekki fengið SMS-skilaboð geta komið á Suðurlandsbraut 34, milli klukkan 9:00 og 15:00 í dag og fengið bólusetningu.
Bólusetja einnig þau sem misstu af fyrri sprautu
Þau sem eru 90 ára og eldri, fædd 1931 eða fyrr, og misstu af bólusetningunni 2. febrúar er einnig boðið i bólusetningu í dag. Þau geta mætt á Suðurlandsbraut 34 milli kl. 9:00 og 15:00 í dag, hafi þau ekki fengið SMS-skilaboð með sérstakri tímasetningu.
Allir eru beðnir um að mæta með skilríki og heilsugæslan minnir á grímuskyldu. Bólusett er í axlarvöðva og í almennu rými og því er fólk beðið um að koma klætt þannig að auðvelt sé að ná í stungustaðinn. Allir þurfa að bíða í 15 mínútur eftir að bólusetning er gefin.
Hafi fólk bráðaofnæmi við stungulyfjum, eða af óþekktum toga, er ekki ráðlegt að bólusetja það. Heilsugæslan biður þá sem ekki þiggja bólusetningu um að láta vita á [email protected] eða i síma 513-5000.