
Fordæma að skotið hafi verið á bíl fjölskyldu Dags
„Meðal þess besta við að búa á Íslandi er hversu friðsælt samfélag okkar hefur verið. Lengst af hafa kjörnir fulltrúar og leiðtogar í athafnalífi getað lifað lífi sínu án ótta um líkamlegan skaða. Þannig viljum við hafa það,“ segir í yfirlýsingunni.
„Það eru því hörmulegar fréttir að skotárás hafi verið gerð á bifreið fjölskyldu borgarstjóra og skrifstofur stjórnmálaflokka. Það er gott að sjá að yfirvöld taka árásina á bifreið fjölskyldu borgarstjóra föstum tökum. En vandamálið endar ekki þar. Umræðumenning á opinberum vettvangi fer síharðnandi og verður æ ofbeldisfyllri. Verja þarf grunnstoðir lýðræðisins, sem er þátttaka hvers konar í stjórnmálastarfi, frjáls frá ógnunum, hótunum og ofbeldi.“
Í yfirlýsingunni fordæmir stjórn Viðreisnar hvers konar ógnanir og ofbeldi gegn stjórnmálafólki. „Það er von okkar að viðbrögð samfélagsins alls verði með þeim hætti að árásum þessum linni þegar í stað,“ segir í yfirlýsingunni.