Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa boðað til upplýsingafundar um kórónuveirufaraldurinn klukkan 11:00 í dag. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn verða á fundinum.
Upplýsingafundurinn verður sýndur í beinni útsendingu í sjónvarpi, útvarpað á Rás 2 og sýndur hér á vefnum, þar sem einnig verður hægt að fylgjast með beinu textastreymi fréttastofu.