Mynd: Google

Athugið þessi frétt er meira en 2 ára gömul.
Innkalla fæðubótarefni vegna of hás magns B6
04.12.2020 - 17:00
Fæðubótarefni The True Original - Animal pak dietary supplement sem flutt er inn af fyrirtækinu Prótín.is hefur verið innkallað af Matvælastofnun. Magn B6 vítamíns í efninu er yfir ráðlögðum dagskammti.
Matvælastofnun fékk ábendingu um málið frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur sem hefur eftirlit með fyrirtækinu. Innköllunin á við allar best fyrir dagsetningar.
Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga. Nánari upplýsingar veitir Prótín.is, Síðumúla 15 (baka til), 108 Reykjavík.
- Vörumerki: Universal Nutrition
- Vöruheiti: The True Original - Animal Pak - dietary supplement
- Geymsluþol: Engin geymsluþolsmerking
- Dagsetning: Allar best fyrir dagsetningar
- Lotunúmer: Öll lotunúmer
- Strikamerki: 039442030115 (vara í áldós) / 039442032218 (vara í plastdollu)
- Nettómagn: 44 pakkar (áldós/vara í töfluformi, hver pakki inniheldur 11 töflur) / 387 g (plastdolla /vara á duftformi)
- Geymsluskilyrði: Kælivara
- Framleiðandi: Universal Nutrition, New Brunswich, New Jersey
- Framleiðsluland: Bandaríkin
- Dreifing: Prótín.is vefverslun
The True Original - Animal Pak - dietary supplement