64 liggja nú á sjúkrahúsi vegna COVID-veikinda og hafa aldrei verið fleiri. Tveir voru lagðir inn í gær. Fjórir eru á gjörgæslu. 75 greindust í gær innanlands, 15 utan sóttkvíar. Nú eru smit í öllum landsfjórðungum, þrír eru í einangrun á Austurlandi sem hefur verið smitlaus fjórðungur síðustu vikur.
Helstu takmarkanir sem kynntar voru á fundinum, sem ná til landsins alls:
- 10 manna fjöldatakmörk meginregla.
- - Heimild fyrir 30 manns í útförum en 10 að hámarki í erfidrykkjum.
- - 50 manna hámarksfjöldi í lyfja- og matvöruverslunum en reglur um aukinn fjölda með hliðsjón af stærð húsnæðisins.
- - Fjöldatakmarkanir gilda ekki um almenningssamgöngur, hópbifreiðar, innanlandsflug eða störf viðbragðsaðila.
- - Fjöldatakmarkanir gilda ekki um störf ríkisstjórnar, ríkisráðs, Alþingis og dómstóla.
- 10 manna fjöldatakmörk eiga ekki við þegar fleiri búa á sama heimili.
- Íþróttir óheimilar.
- Sundlaugum lokað.
- Sviðslistir óheimilar.
- Krám og skemmtistöðum lokað.
- Veitingastaðir með vínveitingaleyfi mega ekki hafa opið lengur en til 21.00.
- Grímuskylda þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra nálægðarmörk milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.
- Börn fædd 2015 og síðar undanþegin 2 metra reglu, fjöldamörkum og grímuskyldu (gilti áður um börn fædd 2005 og síðar).
Fundurinn var í beinni útsendingu í sjónvarpi og hann má sjá í heild hér að ofan. Þá má sjá beina textalýsingu hér að neðan.