
Grímur Grímsson, Karl Steinar og Víðir meðal umsækjenda
Fjórar stöður hjá embættinu voru nýverið auglýstar og hafa nöfn umsækjenda nú verið birt. Fyrirhugað er að ráða í stöðurnar frá 1. nóvember.
Þessi störf eru hluti af nýju skipuriti embættisins sem kynnt var fyrr í þessum mánuði.
Um stöðu sviðsstjóra þjónustusviðs ríkislögreglustjóra sækja þau Árdís Rut H. Einarsdóttir lögfræðingur, Hallgrímur Tómasson lögfræðingur, Rannveig Þórisdóttir sviðsstjóri hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu og
Valdimar Björnsson verkfræðingur.
Um stöðu yfirlögregluþjóns landamærasviðs ríkislögreglustjóra sækir Jón Pétur Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra.
Fjórir sækja um stöðu yfirlögregluþjóns alþjóðasviðs ríkislögreglustjóra; þeir Bjarni Ólafur Ólafsson lögreglufulltrúi hjá embætti ríkislögreglustjóra, Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra og tengslafulltrúi Europol, Gylfi Hammer Gylfason aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra og Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
Þá er einn umsækjandi um stöðu yfirlögregluþjóns almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra; Guðmundur Víðir Reynisson, sem er settur yfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra.