
Vinnan ómerk eigi launafólk ekki sinn fulltrúa
Er með því vísað í starfshóp hagfræðinga sem ríkisstjórnin hefur skipað. Í honum eiga sæti Már Guðmundsson fyrrverandi seðlabankastjóri, Tómas Brynjólfsson skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðarframkvæmastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Í yfirlýsingu forystukvenna ASÍ, BHM og BSRB er kallað eftir því að starfshópurinn verði breikkaður þannig að sjónarmið fleiri en atvinnurekenda fái að koma þar fram.
„Við köllum eftir því að starfshópur fjármálaráðherra sem vinna mun reglulegar greiningar á efnahagslegum áhrifum valkosta í sóttvarnarmálum verði breikkaður þannig að sjónarmið fleiri en atvinnurekenda fái að koma þar fram. Það er gamaldags viðhorf að efnahagsmál snúist fyrst og fremst um fyrirtæki en ekki heimili og almenning,“ segir í yfirlýsingunni.
Tekið hafi verið fram í tilkynningu fjármálaráðuneytis um skipan starfshópsins að hann eigi að taka tilltil til ólíkra samfélagshópa og geira hagkerfisins. Fulltrúi stórfyrirtækja hafi verið kallaður til en fulltrúar launafólks séu víðs fjarri og segja þær þetta til marks um „rörsýn fjármálaráðherra í efnahagsmálum“ og það geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir íslenskt samfélag til framtíðar.
Verði fulltrúi launafólks ekki hluti af hópnum verði tillögur starfshópsins og vinna hans ómerk.