
Hönnun Herjólfs verðlaunuð
Shippax er tímarit sem sérhæfir sig í umfjöllun um ferjur, skemmtiferðaskip og bílferjur. Vegagerðin greinir frá verðlaununum.
Verðlaunin voru veitt fyrir hönnun sem skili sér í skipi sem auðvelt sé að stjórna við mjög erfiðar aðstæður gegn opnu hafi og í siglingu inn í grunna Landeyjahöfn þar sem búast megi við háum öldum og hröðum straumum.
Fyrsta ferjan sem siglir með 3 MWh rafhlöðum fyrir opnu hafi
Bent var á við úthlutun verðlaunanna að Herjólfur mun sigla alfarið með rafmagni milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja þótt lagt hafi verið upp með annað. Þetta sé fyrsta ferjan sem siglir með þriggja megavattstunda rafhlöðum fyrir opnu hafi en hingað til hafi sú aðferð verið notuð á styttri leiðum með mun rólegra sjólagi en Íslendingar eiga að venjast. Einnig er það talinn kostur að raforkan á Íslandi er græn orka.
Afhenda átti verðlaunin á ráðstefnu í apríl en það frestast fram í september vegna Covid-19.
„Það er mjög ánægjulegt að hönnun Herjólfs hljóti þessi verðlaun enda hefur ferjan reynst mjög vel í siglingum milli lands og Eyja. Einnig hefur hún reynst vel á milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar þótt hún hafi sérstaklega verið hönnuð til að sigla í Landeyjahöfn þá hefur hún reynst betra sjóskip á lengri leiðinni en gamli Herjólfur III,“ segir á vef Vegagerðarinnar.