
Hækka ráðlagðan heildarafla grásleppu um tæp 600 tonn
Tveimur meginatriðum var breytt varðandi umreikning tunnufjölda í magn óslægðrar grásleppu fyrir tímabilið1985-2007. Annars vegar var samband hrognamagns og tunnufjölda á vertíð í veiðidagbókum leiðrétt fyrir tímabilið, hins vegar var meðal hrognaprósenta (GSI) sem gengið var út frá við umreikninginn lækkuð lítillega samkvæmt viðameiri gögnum, eða úr 30,5 í 29,4 prósent.
Auk þessara tveggja atriða var 20% „sullprósenta“ sem Fiskistofa dregur frá hrognamagni við skráningu í gagnagrunn, lögð aftur ofan á landanir hrogna fyrir árin 2008-2016.
Meðalvísitala veiðihlutfalls sem miðað er við í ráðgjafarreglu er því komin aftur í fyrra horf frá því í fyrra, eða 0,75.
Fyrir vertíðina 2021 hækkar upphafsráðgjöf úr 1459 í 1634 tonn. Í dag er heildarafli vertíðarinnar kominn í 5035 tonn samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu.
Uppfærða ráðgjöf má finna hér.