Ísland hefur vakið mikla athygli í kvikmyndageiranum eftir að yfirmaður hjá Netflix upplýsti að fyrirtækið væri við tökur á sjónvarpsþáttum í tveimur löndum; Íslandi og Suður Kóreu.
Minnst fjögur erlend kvikmyndaverkefni eru nú að skoða það alvarlega að koma til Íslands til að halda tökum áfram eftir að hafa þurft að stöðva tökur í kórónuveirufaraldrinum, samkvæmt heimildum fréttastofum og í einhverjum tilvikum gætu tökurnar staðið í meira en mánuð.
Þá er mikið um fyrirspurnir og í einhverjum tilvikum hafa tökuliðin áhuga á að taka upp í kvikmyndaverum hér á landi. Það er eitthvað sem ekki hefur þekkst hér á landi áður.
Leifur Dagfinnsson, kvikmyndaframleiðandi hjá True North, segir Ísland í dauðafæri. „Ég held að þó þetta sé ekki nema mánuður, frá 15. maí til 15. júní, að þá opnar þetta strax á umræðuna að Ísland sé opið fyrir þennan iðnað og það skiptir mjög miklu máli. Svo verður spennandi að sjá hvað gerist þegar slakað verður frekar á þessum takmörkunum og Ísland opnar enn frekar.“
Samkeppnin er hörð í þessum geira og nú þegar eru lönd sem Ísland er í baráttu við annað hvort að skoða að hækka endurgreiðslu til kvikmyndaverkefna eða hafa þegar gert það eins og Spánn.
Leifur bendir á að þessi iðnaður komi ferðaþjónustunni, sem nú á undir högg að sækja, mjög vel. Um þrjátíu prósent af veltu svona kvikmyndaverkefna fari til hennar.
En þótt Ísland sé í algjöru dauðafæri sé hætta á því að færið fari forgörðum ef stjórnvöld bregðist ekki við. „Tíminn er núna. Eins og oft á Íslandi þá getum við brugðist fljótt við eins og dæmin sýna og þetta er enn eitt tækifærið. Þarna er ekki verið að borga út pening heldur kemur hann fyrst inn í landið. Þetta er algjörlega sjálfbært kerfi og myndar gríðarlega miklar skatttekjur fyrir land og þjóð.“