Ein sjúkraflugvél á vegum Mýflugs sér alfarið um að fljúga með sjúklinga sem grunað er að séu smitaðir af kórónuveirunni eða eru með staðfest smit.
Slökkvilið Akureyrar greinir frá því á Facebook að tekin hafi verið ákvörðun um þetta í samráði við Mýflug í síðustu viku. Sjúkraflugvélin hefur nú þegar flogið með nokkra smitaða einstaklinga. Fyrirkomulagið verður með þessum hætti þar til faraldurinn gengur yfir.
Í færslunni segir að þetta fyrirkomulag komi sér afar vel því ekki sé hægt að fara í annað flug fyrr en búið sé að þrífa vélina þegar flogið hafi verið með smitaða.