Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Tónlist í þættinum:
Hver á sér fegra föðurland - Kór Langholtskirkju
Botnía - Ómar Ragnarsson
Smaladrengurinn/Út um græna grundu - Guðmundur Jónsson
Twist and shout - The Beatles
Eight days a week - The Beatles
Abide with me - The King's Singers
Ver hjá mér Herra - Anna Pálína Árnadóttir
Sem kóngur ríkti hann - Þrjú á palli
Whole Lotta Love - Led Zeppelin
Immigrant song - Led Zeppelin
Black Night - Deep Purple
Paranoid - Black Sabbath
Imagine - John Lennon
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Í þættinum verður leikin tónlist eftir Inu Boyle, en hún var írsk, fædd árið 1889 og dó 1967. Hún var eitt af merkustu tónskáldum Írlands á fyrri hluta 20. aldar, en bjó mestalla sína ævi við talsvert mikla einangrun á sveitasetrinu Bushey Park, skammt frá borginni Enniskerry í Wicklow á Írlandi. Þótt hún reyndi að koma verkum sínum á framfæri voru þau flest óflutt og óþekkt þar til núna á síðustu árum. Mörg verka hennar hafa nú verið hljóðrituð í fyrsta skipti og vakið athygli. Í þættinum verða flutt nokkur af sönglögum Boyle, þáttur úr fiðlukonsert hennar og söngverkið „Still falls the rain“ við ljóð eftir Edith Sitwell sem lýsir loftárásunum á London árið 1940. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Gunnar Hansson og Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í þættinum er fjallað um gróður á Íslandi á öldunum fyrir ísöld þegar loftlag var hlýrra eða á hinu svokallaða tertíer-tímabili jarðsögunnar. Ýmsar minjar frá þeim tíma sýna að hér á landi uxu á tegundir sem garðeigendur dagsins í dag leitast við að koma á legg. Rætt er um hvaða afleiðingar kólnunin rétt fyrir ísöld hafði og þær breytingar sem verða þegar siglt er inn í kvarter-tímabil jarðsögunnar sem einkennist af hitasveiflum og tilkomu mannsins. Fjallað er um hvaðan tegundirnar komu eftir ísöld og mögulega hvernig þær námi land – sem og hvaða tegund hefði mögulega geta lifað af ísöld á jökulskerjum ef það var raunin.
Viðmælendur: Brynhildur Magnúsdóttir, Þráinn Hauksson, Steinar Björgvinsson og Steinunn Garðarsdóttir.

frá Veðurstofu Íslands.
Óperur og óperettur rötuðu ekki á íslenskt leiksvið fyrr en á fjórða áratug síðustu aldar.
Margar af fyrstu uppfærslunum urðu geysivinsælar en eru flestum gleymdar í dag. Á meðan kreppan lagðist þungt á íslenskt samfélag skemmti fólk sér við að syngja og tralla með persónum úr evrópskum hástéttarævintýrum. Á sviðinu ríkti glaumur og gleði en bak við tjöldin var tekist á.
Umsjón og dagskrárgerð: Bjarni Thor Kristinsson
Eftir að Leikfélag Reykjavíkur hafði sett upp fyrstu óperettusýninguna á Íslandi var komið að Tónlistarfélaginu, með Ragnar í Smára í fararbroddi, að setja Meyjaskemmuna á svið. Engu var til sparað, hvorki við uppfærsluna sjálfa né í kynningar- og markaðsmálum, og árangurinn lét ekki á sér standa. En sama formúlan virkar ekki alltaf. Það fengu Ragnar og félagar hans í Tónlistarfélaginu að reyna þegar kom að næstu uppfærslu.
Viðmælendur í þættinum eru Árni Heimir Ingólfsson, tónlistarfræðingur, Jón Karl Helgason, bókmenntafræðingur, Ólöf Kolbrún Harðardóttir, söngkona, Páll Baldvin Baldvinsson og Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri.
Lesarar í þættinum eru Anna Marsibil Clausen, Gunnar Hansson, Jóhannes Ólafsson, Pétur Grétarsson og Stefán Jónsson.
Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson
Sr. Dís Gylfadóttir
Organisti: Óskar Einarsson
Barnakór Lindakirkju og Unglingagospelkór Lindakirkju, stjórnendur Áslaug Helga Hálfdánardóttir og Hjördís Anna Matthíasdóttir.
Píanó: Óskar Einarsson
Lestur: Guðmundur Karl Brynjarsson
Einsöngur:
Isól Eyja Brown
Kolbrún Birna Þorsteinsdóttir
Sigríður Maren Arnarsdóttir
Aldís María Sigursveinsdóttir
Heiðrún Lóa Jónsdóttir.
TÓNLIST Í MESSUNNI:
Fyrir predikun
Himnalestin - Óþekktur
Hallelúja - Leonard Cohen ísl. Texti: Jóhanna F. Karlsdóttir
Lofgjörð dýranna - Ernei Rettino ísl. Texti: Hjálmar Guðnason
Undir þínum áhrifum - Guðmundur Jónsson, Stefán Hilmarsson
Ég held með þér- Davíð Sigurgeirsson og Ingvar Alfreðsson
Jesús lifir - Óskar Einarsson
Leiðin okkar allra - Þorsteinn Einarsson og Einar Georg Einarsson
Þig vil ég lofa - Kevin Jonas, Ísl. Þýðing: Emil Hreiðar Björsson, Guðni Gunnarsson og Daney Björk Haraldsdóttir
Eftir predikun
Við erum eitt- Áslaug Helga Háfldánard. Texti: Áslaug og Guðmundur Karl Brynjarsson
Því að svo elskaði Guð heiminn - Óþekktur
Skapa í mér hreint hjarta ó Guð - Keith Green
Oh Happy Day - Edwin Hawkins
Útvarpsfréttir.
Erindrekar Bandaríkjaforseta eru komnir til Úkraínu eftir að hafa átt langan fund með forseta Rússlands í gær. Forseti Úkraínu tók á móti þeim í Kyiv í morgun og á fund með þeim síðar í dag.
Félags- og húsnæðismálaráðherra segir að stjórnvöld hafi ýmsar leiðir til að verja kjarasamninga eftir að forsendur þeirra brustu. Það verði þó aldrei á kostnað hallalausra fjárlaga.
Yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum segist ekki muna eftir stærri Ljósanótt. Lögreglan segir að hátíðin hafi farið vel fram en talsvert var þó um ölvun ungmenna, og eitt þeirra grýtti glerflösku í lögreglumann.
Formaður Samtaka smærri útgerða segir kjaraviðræðum við Sjómannasamband Íslands miða vel áfram. Áform innviðaráðherra um að fella niður línuívilnun geri viðræðurnar þó flóknari.
255 ára skildingur frá nafntoguðum náttúrufræðingi kom óvænt í leitirnar í sumar þegar gönguhópur á ferð um Öræfin kom auga á hann. Skildingurinn er nú kominn á Þjóðminjasafn Íslands.
Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Í þessum fyrsta Krakkaheimskviðuþætti sumarsins fara Karitas og Birta yfir helstu fréttir sumarsins, kynnast forsætisráðuneytiskettinum Larry og skoða hvaða fréttamál eru framundan í haust.
Það er ekki að ófyrirsynju að níundi og næst yngsti sonur Johanns Sebastians er oft kallaður Bückeburg-Bach. Hann starfaði nefnilega allan sinn feril við furstahirðina í þessari litlu borg í Neðra-Saxlandi, hálfan fimmta tug ára. Þar lék hann á sembal og stjórnaði hirðhljómsveitinni, sem þótti ein sú besta í Þýskalandi, og samdi hljómborðsverk, bæði fyrir byrjendur og lengra komna, tríósónötur, sinfóníur, veraldlegar og kirkjulegar kantötur og óratóríur, m.a. í samvinnu við skáldið og heimspekinginn Johann Gottfried Herder, einn af guðfeðrum þýsku rómantíkurinnar. Johann Christoph Friedrich naut þess, eins og eldri bræður hans, að hafa gengið fyrstu skrefin á tónlistarbrautinni við hlið föður síns. Hann átti afar auðvelt með að tileinka sér ýmiskonar stíleinkenni, eftir því sem aðstæður og smekkur kröfðust, en fetaði líka gjarna ótroðnar slóðir í tónlist sinni. Veigamikill hluti af æviverki hans glataðist í seinni heimsstyrjöldinni en þó hafa nógu mörg verka hans varðveist til að hægt sé að gera sér góða grein fyrir framlagi hans til tónlistarinnar. Í minningarorðum sem voru rituð um Johann Christoph Friedrich var hann sagður hafa verið vinnusamur tónsmiður, ætíð til þjónustu reiðubúinn, heiðvirður maður og hjartahlýr. Sonur hans, Wilhelm Friedrich Ernst Bach, var eina barnabarn Johanns Sebastians sem náði frama í tónlist og síðasti fulltrúi Bach-ættarinnar sem lét að sér kveða á því sviði.
Fughetta über H.C.F.B.B.A.C.H. - Johann Christoph Friedrich Bach -Marie-Claire Alain orgel
Sónata í E-dúr f. tvær flautur og
fylgirödd, 1. kafli (Allegretto) - Carl Philipp Emanuel Bach - Valerie Balssa flauta, Jean-Pierre Pinet flauta, Hager Spaeter-Hanana selló og Blandine Rannou - semball
Þriggja radda ricercar úr Tónafórninni - Johann Sebastian Bach - Michael Behringer fortepianó
Úr kantötunni Cassöndru-Johann Chrietoph Friedrich Bach - Lena Susanne Norin alt og Das Kleine Konzert; stjórnandi: Hermann Max
Sinfónia I Bdúr,3. kafli(Allegro assai) - Johann Christoph Friedrich Bach - Neues Bachisches Collegium Musicum ; stjórnandi:Burkhard Glaetzner
Sellósónata i Adúr, 1. kafli (Larghetto) - Johann Christoph Friedrich Bach - Anner Bylsma violoncello piccolo og Bob van Asperen orgel
Mótettan Wachet auf, 1. hluti - Johann Christoph Friedrich Bach - The Choir of Trinity College, Cambridge, stjórnandi: Richard Marlow
Kantatan Die Amerikanerin, seinni hluti -Johann Christoph Friedrich Bach - Magdalena Kozena mezzósópran og Musica
Antiqua Köln; stjórnandi: Reinhard Goebel
So oft ich meine Tobackspfeife, BWV 515 - Úr nótnabók Önnu Magdalenu Bach 1725 - Johannes-Christoph Happel bariton og Michael Behringer semball
Prelude to Einstein on the Fritz (S. e=mt2) - P.D.Q. Bach - The Greater Hoople Area Off-Season
Philharmonic; stjórnandi: Walter Bruno
Duetto Comico - Der Dichter und der Komponist - Wilhelm Friedrich Ernst Bach - Markus Schaefer tenór, Ekkehard Abele bassi og Ludger Rémy fortepianó.
Sinfonia f G-dúr, 3. kafli (Allegro) - Witnelm Friedrich Ernst Bach - Das Kleine Konzert; stjórnandi: Hermann Max
Í byrjun ágústmánaðar 2026 fór fram í Hörpu tónlistarhátíðin Seigla, sem hefur fært tónlistaráhugafólki ferska strauma bæði sígildrar og samtímatónlistar undanfarin ár. Fjölmargir viðburðir á dagskrá dagana 7-9. ágúst sem spönnuðu allt litróf tónlistarinnar auk þess að gera sér far um að höfða til allra aldurshópa með upplfunum fyrir alla fjölskylduna og þá yngstu í viðburðum undir nafninu Litla Seigla.
Í fyrri hluta yfirreiðar Rásar 1 yfir dagskrá Seiglu er byrjað á tónleikum undir nafninu Vættir og óvættir. Söngkonurnar Harpa Ósk Björnsdóttir, Kristín Einarsdóttir Mäntylä og Hildigunnur Einarsdóttir, ásamt Elísabet Waage á hörpu og Matthildi Önnu Gísladóttur á píanó, leiddu saman óperu, sönglög og þjóðlagaarf frá ýmsum löndum Evrópu.
Edward Elgar (1857–1934)
From Sea Pictures:
Sea Slumber Song
Where Corals Lie 1
- Hildigunnur Einarsdóttir
Rebecca Clarke (1886–1979)
The Seal Man
- Kristín Einarsdóttir Mäntylä
Claude Debussy (1862–1918)
Beau soir
- Harpa Björnsdóttir
Antonín Dvořák (1841–1904)
From the opera Rusalka:
Trio of the Water Nymphs “Hou hou hou,
stojí měsíc nad vodou!”
Měsíčku na nebi hlubokém (“Song to the
Moon”)
Marcel Lucien Tournier (1879 –1951)
Vers la source dans le bois (1921)
- Elísabet Waage, harpa
Jórunn Viðar (1918-2017)
Únglíngurinn í skóginum
- Hildigunnur Einarsdóttir
Engelbert Humperdinck (1854–1921)
From Hänsel und Gretel
Abendsegen (Evening Prayer)
Wo bin ich?... Mir ist so wohl
Knusper, knusper, knäuschen
- Harpa Ósk Björnsdóttir og Kristín Mentyle
Matthildur Anna Gísladóttir, píanó og Elísabet Waage, harpa
Viðtal við Ernu Völu Arnardóttur og Hjört Pál Eggertsson úr Morgunglugga Rásar 1
Veronique Vaka - Vatn
- víóluleikarinn Rita Porfiris og fiðluleikarinn Anton Miller
Gyorgy Kurtág (1926)
Játékok
Signs, Games and Messages
- sellóleikarinn Nina Vanhoenacker og píanóleikarinn Ann-Kristín Sofroniou
Veronika Voetman (b. 1986):
Historien om Phaethon (2026), frumflutningur
Bára Grímsdóttir (b. 1960):
María, drottins lilja
Hildigunnar Rúnarsdóttir (1964)
Hygg að og herm hið sanna
- Poul Emborg stjórnar DUVE - Det unge Vokalensmble - dönskum gestum Seiglu árið 2026.
Hildigunnur Rúnarsdóttir
Snæfellsjökulsþjóðgarður
- Rita Porfiris, víóla og Anton Miller, fiðla
Þorgrímur Þorsteinsson hljóðritaði
Umsjón: Pétur Grétarsson

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir, Atli Sigþórsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Þáttur um íslenskt mál og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.
Nöfn Íslendinga hafa ekki alltaf verið þau sömu, enda heitum við ekki öll landnámsnöfnum enn þann dag í dag, þótt þau tíðkist auðvitað, og séu sum hver algeng. Sum þeirra hurfu reyndar um tíma og voru tekin upp aftur síðar. Fjallað var um tískusveiflur í nafnvenjum, gælunöfn og ólíkar hefðir á Íslandi og í Bandaríkjunum.

Fréttir
Hvaða hugmyndir höfum við um geðveikar mömmur? Hvers vegna breytast sum viðhorf en önnur ekki?
Þættir um mæður, geðsjúkdóma og sögurnar sem fjölskyldur segja – eða segja ekki.
Hera Guðmundsdóttir fléttar saman sögu langömmu sinnar sem send var á Klepp um miðja tuttugustu öldina, eigin reynslu af geðhvörfum og samtímasögur mæðra sem lifa með geðsjúkdómum: Sögur um móðurhlutverkið, skömm og þagnir en líka ást, nánd og nýjar raddir.
Dagskrárgerð: Hera Guðmundsdóttir
Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Hvernig höldum við að geðveikar mæður séu?
Í þessum þriðja og síðasta þætti veltir Hera fyrir sér hugmyndum um góðar og slæmar mæður. Hún heldur áfram leitinni að rödd langömmu sinnar og við heyrum fleiri sögur mæðra úr samtímanum: Sögur um fordóma og ótta en líka hreinskilni og von. Geta nýjar raddir breytt gömlum viðhorfum?

frá Veðurstofu Íslands
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Það gekk á ýmsu í úkraínskum stjórnmálum í sumar. Mótmæli brutust út þegar varnarmálaráðherranum, sem naut mikilla vinsælda, var vikið úr embætti. Síðsumars ruggaði hann bátnum allhressilega þegar hann sendi frá sér myndband þar sem hann lagði til að efnt yrði til kosninga. Bannað er að halda kosningar samkvæmt herlögum sem hafa gilt síðan Rússlandsher hóf allsherjarinnrás 2022. Þá hafa orðið vendingar í spillingarmáli sem virðist teygja sig alla leið inn á skrifstofu forseta landsins, Volodymyrs Zelenskýs. Dagný Hulda Erlendsdóttir fer yfir stöðuna í úkraínskum stjórnmálum.
Þau Birta og Bjarni Pétur fara svo yfir nokkrar af helstu fréttum sumarsins. Þar kemur meðal annars við sögu fatastíll Georgiu Meloni, tónlistarsmekkur Andy Brunham, frændsystkinin Margrét Þórhildur og Karl Gústaf og fleira.
Óperur og óperettur rötuðu ekki á íslenskt leiksvið fyrr en á fjórða áratug síðustu aldar.
Margar af fyrstu uppfærslunum urðu geysivinsælar en eru flestum gleymdar í dag. Á meðan kreppan lagðist þungt á íslenskt samfélag skemmti fólk sér við að syngja og tralla með persónum úr evrópskum hástéttarævintýrum. Á sviðinu ríkti glaumur og gleði en bak við tjöldin var tekist á.
Umsjón og dagskrárgerð: Bjarni Thor Kristinsson
Eftir að Leikfélag Reykjavíkur hafði sett upp fyrstu óperettusýninguna á Íslandi var komið að Tónlistarfélaginu, með Ragnar í Smára í fararbroddi, að setja Meyjaskemmuna á svið. Engu var til sparað, hvorki við uppfærsluna sjálfa né í kynningar- og markaðsmálum, og árangurinn lét ekki á sér standa. En sama formúlan virkar ekki alltaf. Það fengu Ragnar og félagar hans í Tónlistarfélaginu að reyna þegar kom að næstu uppfærslu.
Viðmælendur í þættinum eru Árni Heimir Ingólfsson, tónlistarfræðingur, Jón Karl Helgason, bókmenntafræðingur, Ólöf Kolbrún Harðardóttir, söngkona, Páll Baldvin Baldvinsson og Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri.
Lesarar í þættinum eru Anna Marsibil Clausen, Gunnar Hansson, Jóhannes Ólafsson, Pétur Grétarsson og Stefán Jónsson.
Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Bulgarian Voices Angelite, The - Vetchera i rado.
Sirtos Ensemble - Tsifteteli.
Kocani Orkestar - Fantaisia For Clarinet.
Bosco, Joao - Aquarela do Brasil (úr syrpu).
Moré, Beny - Solamente una vez.
Leandry, Luc - Votez Zouk la.
Etoile 2000 - Boubou n'gary.
Manet, Rachunath - Sarasaganalola.
Kazdoura - Marhaba Ahlen.
Kundanlal - Kathak dance.
Ustad Mahwash - Farchar = Instrumental.


frá Veðurstofu Íslands
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Sixième quatuor, Sz. 114 (1939) eftir Béla Bartók. Kvartettinn Quatour Végh leikur.
Verkið er í 4 þáttum:
1. Mesto - Piu mosso, pesante
2. Mesto - Marcia
3. Mesto - Burletta
4. Mesto
Útgefið á plötunni Quatuors no 5 & 6 árið 1986.
The Fruit of Silence eftir Peteris Vasks. Verkið var útsett af George Morton fyrir harmóníku, víbrafón og strengjasveit. Ksenija Sidorova leikur á harmóníku með Eistnesku hátíðarhljómsveitinni (e. Estonian Festival Orchestra), stjórnandi er Paavo Järvi. Hljóðritun gerð í júlí 2025 á Pärnu-tónlistarhátíðinni (e. Pärnu Music-Festival) Útg. á plötunni Prophecy árið 2026.
Strengjakvartett nr. 2, The surreal 1960/2005 eftir Atla Heimi Sveinsson.
Strokkvartettinn Siggi leikur, en hann er svo skipaður:
Á fiðlur leika Helga Þóra Björgvinsdóttir og Una Sveinbjarnardóttir; Þórunn Ósk Marinósdóttir á víólu og Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló. Útg. á plötunni The Complete String Quartets 2023.
Deuxième Arabesque (úr Deux Arabesques) eftir Claude Debussy. Brodsky-kvartettinn leikur, en hann skipa: Krysia Osostowicz (fyrsta fiðla); Ian Belton (önnur fiðla); Paul Cassidy, (víóla) og Jacqueline Thomas (selló).
Upptökur fóru fram í St Michael’s Church, Highgate, London 4.–6. apríl 2022. Útg. árið 2023 á plötunni Golden Oldies – More Favourite Encores.
Die Forelle D 550 eftir Franz Schubert. Ljóðið er eftir Christian Friedrich Daniel Schubart. Benjamin Britten útsetti fyrir hljómsveit. Anne Sofie von Otter mezzo-sópran syngur, Kammersveit Evrópu (e. Chamber Orchestra of Europe) leikur með undir stjórn Claudio Abbado. Útgefið á plötunni Schubert Lieder with orchestra árið 2003.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
7. nóvember 1550 voru Jón Arason biskup á Hólum og synir hans Björn og Ari líflátnir í Skálholti. Þrír íslenskir skáldsagnahöfundar hafa lýst aftökunni í verkum sínum, Torfhildur Hólm, Gunnar Gunnarsson og Ólafur Gunnarsson. Umsjónarmaður fjallar stuttlega um aðdraganda aftökunnar og les síðan kaflana þrjá.

Útvarpsfréttir.
Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.
Sveitasíminn hringdi í Vík að þessu sinni og þar varð Daníel Óliver Sveinsson fyrir svörum, en hann rekur þar tvo veitingastaði og vinnur að opnun fyrsta bakarís staðarins.
Gestur þáttarins var svo Benedikt Gylfason lagasmíðanemi við Berklee háskóla í Boston í Bandaríkjunum og hann sagði frá löngum listaferli þó ungur sé, ballettdraumnum sem varð ekki að veruleika vegna þrálátra meiðsla, kórlífinu og svo náminu fyrir vestan.
Lagalisti:
Jónas Sig - Að lokum
Brenda Lee - I'm Sorry.
Ellen Kristjáns og Þorsteinn Einars - Hluthafi í heiminum.
John Mayer - I Guess I Just Feel Like.
Mannakorn - Þegar blúsinn hellist yfir.
Árstíðir - Ljóð í sand.
Stebbi JAK - Djöflar.
Daníel Óliver - First, pop.
Oasis - She's electric.
Nick Cave and the Bad Seeds - Bring It On.
Elbow - Golden Slumbers.
Carpenters - Rainy Days And Mondays.
Benedikt Gylfason - Þora.
Benedikt Gylfason - Bow to the emperor (Lifandi flutningur).
Valdimar - Yfir borgina.
Bee Gees - Too much heaven.
Freyr Eyjólfsson mætir með kaffibollann sinn og grúskar í allskonar tónlist frá ýmsum tímum.
Ferðu í stuð eða fýlu á haustin? Haustið er magnaður tími en fer misvel í fólk. Kannski er ráð að taka upp tvískiptan svefn? Miðaldasvefninn gæti verið málið.
ÁRNÝ MARGRÉT - Akureyri.
Hrafn Thoroddsen - Alone again.
Bubbi Morthens - Agnes Og Friðrik
Helgi Björnsson - Allt ljómar.
Hafdís Huld - Action Man.
GEORGE HARRISON - All Things Must Pass.
RADIOHEAD - All I Need.
THE CHARLATANS - A man needs to be told.
KK - Á æðruleysinu.
KK & MAGNÚS EIRÍKSSON - Addi Amfetamín.
ROBERT PLANT & STRANGE SENSATION - All The Kings Horses.
STUÐMENN - Á Skotbökkum.
POLLAPÖNK - Ættarmót.
Útvarpsfréttir.
Erindrekar Bandaríkjaforseta eru komnir til Úkraínu eftir að hafa átt langan fund með forseta Rússlands í gær. Forseti Úkraínu tók á móti þeim í Kyiv í morgun og á fund með þeim síðar í dag.
Félags- og húsnæðismálaráðherra segir að stjórnvöld hafi ýmsar leiðir til að verja kjarasamninga eftir að forsendur þeirra brustu. Það verði þó aldrei á kostnað hallalausra fjárlaga.
Yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum segist ekki muna eftir stærri Ljósanótt. Lögreglan segir að hátíðin hafi farið vel fram en talsvert var þó um ölvun ungmenna, og eitt þeirra grýtti glerflösku í lögreglumann.
Formaður Samtaka smærri útgerða segir kjaraviðræðum við Sjómannasamband Íslands miða vel áfram. Áform innviðaráðherra um að fella niður línuívilnun geri viðræðurnar þó flóknari.
255 ára skildingur frá nafntoguðum náttúrufræðingi kom óvænt í leitirnar í sumar þegar gönguhópur á ferð um Öræfin kom auga á hann. Skildingurinn er nú kominn á Þjóðminjasafn Íslands.
Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er að gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.
Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!
Það var nóg um að vera á Sportrásinni í dag. 6 leikir í Bestu deildunum og 2 leikir í enska boltanum. Doddi fylgdist náið með öllu.
Lagalisti dagsins
SPORTRÁSIN - UPPHASSTEF SPORTRÁS.
SPORTRÁSIN - UPPHASSTEF ENDIR SPORTRÁS.
Jakob Frímann Magnússon - Sól í dag.
REBEKKA BLÖNDAL - Sólarsamban.
Harris, Calvin, Jazzy - Satisfy.
Stranglers - Always the sun.
Djo - End of Beginning.
Angel, Imael, Ultra Nate, HUGEL - Movin' To The Sun.
LENNY KRAVITZ - The Chamber.
Salka Sól Eyfeld - Sólin og ég.
SÓLDÖGG - Svört Sól.
ROCKERS REVENGE - Walking on Sunshine (80).
BAD MANNERS - Walking In The Sunshine.
LAID BACK - Sunshine reggae.
Valdimar Guðmundsson - 2 Stjörnur (beint í Sumarmorgnum 28.08?13).
VIOLENT FEMMES - Blister in the sun.
FINLEY QUAYE - Sunday Shining.
Style Council, The - Long hot summer.
ÉG - Sumarsmellur.
Snoop Dogg, Khan, Chaka - Boogie's in My Soul.
Ásgeir Trausti Einarsson - Heartbeat.
FREAK POWER - Turn On, Tune In, Cop Out.
Atli Dagur Stefánsson - So Long.
SHOOTING BLANKS - Summer.
Marvin Gaye - Sunny (Mercury Edit II).
RED - Squeeler.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Útvarpsfréttir.

Fréttir

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Á sunnudögum opnar Rósa Suðupottinn og býður hlustendum í fjölbreytt tónlistarferðalag þar sem jazz, trip hop, heimstónlist og fleiri stefnur mætast í nútímanum.

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Þær Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunnar í Vinsældalista Rásar 2.
Mikið af nýjum lögum á lista þessa vikuna, Ragga kíkir á Baksýnisspegilinn og fer 60 ár aftur í tímann og Vilborg spáði ársgömlu lagi í Spákúlunni.
Lagalistinn:
Dolly Parton - 9 To 5
Ásgeir Against - The Current
Cage The Elephant - Beaches In Tennessee
Aldous Harding feat. H. Hawkline - Venus In The Zinnia
Quarashi - Do It Again
Baksýnispegillinn: The Beach Boys - Good Vibrations
Alex Warren - Fever Dream
Temper City -Self Aware
Queens Of The Stone Age - Easy Street
Topp tíu :
10. Memfismafían & Björn Jörundur - Ég Kenni Þér Um
9. Ella Langley - Be Her
8. Bubbi - Ég Er Tilbúinn
7. Fontaines D.C. - Marianne
6. Sycamore Tree - All Tangled Up
5. Klara Einars - Ef Hann Myndi
4. Daði Freyr - I'm Out And I Wanna Go Home
Spákúlan: Tame impala- Looser
3. Kacey Musgraves - I Believe In Ghosts
2. Peggy Gou feat. Ayra Starr - Wo, man
1. Disco Bambino & Nile Rogers feat. Sophie Ellis-Bextor -Dancing Without You