12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 6.september 2026

Útvarpsfréttir.

Erindrekar Bandaríkjaforseta eru komnir til Úkraínu eftir að hafa átt langan fund með forseta Rússlands í gær. Forseti Úkraínu tók á móti þeim í Kyiv í morgun og á fund með þeim síðar í dag.

Félags- og húsnæðismálaráðherra segir að stjórnvöld hafi ýmsar leiðir til að verja kjarasamninga eftir að forsendur þeirra brustu. Það verði þó aldrei á kostnað hallalausra fjárlaga.

Yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum segist ekki muna eftir stærri Ljósanótt. Lögreglan segir að hátíðin hafi farið vel fram en talsvert var þó um ölvun ungmenna, og eitt þeirra grýtti glerflösku í lögreglumann.

Formaður Samtaka smærri útgerða segir kjaraviðræðum við Sjómannasamband Íslands miða vel áfram. Áform innviðaráðherra um að fella niður línuívilnun geri viðræðurnar þó flóknari.

255 ára skildingur frá nafntoguðum náttúrufræðingi kom óvænt í leitirnar í sumar þegar gönguhópur á ferð um Öræfin kom auga á hann. Skildingurinn er nú kominn á Þjóðminjasafn Íslands.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 20 mín.
,