Útvarp
Sjónvarp
Útvarp
KrakkaRÚV
UngRÚV
MenntaRÚV
Beint
RÁS 1
RÁS 2
RONDÓ
Dagskrá
Leit
Þættir
Ragnar Loðbrók, fyrsti hluti: Stríðsmaður Óðins
Ragnar Loðbrók dreymir um að verða mikill stríðskappi en neyðist dag einn til að flýja heimili sitt. Þá birtist stríðsguðinn Óðinn honum skyndilega.
Ragnar Loðbrók, annar hluti: Björn Járnsíða og árásin á París
Ragnar er útvalinn af stríðsguðinum Óðni en þegar hann hertekur París ásamt syni sínum Birni Járnsíðu kemur í ljós að Óðinn er óáreiðanlegur bandamaður.
Ragnar Loðbrók, þriðji hluti: Síðasta stríðið
Ragnar vill kvænast konungsdótturinni Ingibjörgu en fyrsta kona hans, Kráka, spáir því að allt muni fara á versta veg í lífi hans ef hann lætur verða af því.
Guðríður Þorbjarnardóttir, fyrri hluti: Ferðin til Ameríku
Guðríður siglir frá Íslandi, hún ætlar að hefja nýtt líf á Grænlandi. Hún giftist Þorsteini en veturinn er harður og hann veikist alvarlega.
Guðríður Þorbjarnardóttir, seinni hluti: Nýtt líf á Vínlandi
Þorsteinn lifir harðan veturinn ekki af en Guðríður heyrir rödd hans engu að síður, hann segir henni að láta draum þeirra rætast og sigla til Vínlands.
Ingigerður Ólafsdóttir, fyrri hluti: Ómögulegt val konungsdóttur
Ingigerður verður gegn vilja sínum þáttakandi í valdatafli föður síns, Svíakonungs, sem fær hótanir bæði frá ásatrúar- og kristnum mönnum.
Ingigerður Ólafsdóttir, seinni hluti: Ævintýrið í austri
Ingigerður stendur frammi fyrir erfiðum valkostum. Hún þarf að velja hvort hún ætlar að fylgja föður sínum eða hjarta sínu og þar með norska konunginum Ólafi Haraldssyni.
Haraldur Harðráði, fyrri hluti: Flóttinn frá Konstantinópel
Haraldur Harðráði missir bróður sinn Ólaf í orustunni á Stiklastöðum og flýr með skáldi sínu, Þórólfi. Takmark hans er að snúa aftur og þá sem konungur Noregs.
Haraldur Harðráði, seinni hluti: Baráttan um norsku krúnuna.
Haraldur snýr aftur til Noregs þar sem hann ætlar að hefna dauða bróður síns og ná aftur norsku krúnunni, en um þessar mundir stjórnar bróðursonurinn Magnús landinu.
Stikla
,