Stórsveit Reykjavíkur hélt spennandi tónleika föstudaginn 24. apríl kl.18:00 í Norðurljósasal Hörpu. Flutt var tónlist úr barnasöngleiknum Bláa Hnettinum sem er byggður á sögu Andra Snæs Magnasonar með tónlist eftir Kristjönu Stefánsdóttur og söngtextum eftir Berg Þór Ingólfsson. Nú hefur þessi vinsæla tónlist verið útsett fyrir stórsveit af Eiríki Rafni Stefánssyni sem einnig var stjórnandi á tónleikunum.
Sérstakir gestir voru leikararnir Björgvin Franz Gíslason og Hjörtur Jóhann Jónsson auk Barnakórs Akureyrarkirkju undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur og Barnakórs Ungleikhússins í Keflavík undir stjórn Kristjönu Stefáns ásamt ungum einsöngvurum frá Ungleikhúsinu í Keflavík og Grandaskóla í Reykjavík. Þess má geta að Blái hnötturinn hlaut Grímuverðlaunin sem barnasýning ársins og tónlist ársins árið 2016. Tónleikarnir voru haldnir í samvinnu við Barnamenningarhátíð.
Hlutverk:
Skógarbjörn og sögumaður: Hjörtur Jóhann Jónsson
Gleði Glaumur: Björgvin Franz Gíslason
Hulda: Helena Björg Halldórsdóttir
Brimir: Ágúst Þór Guðmundsson
Margrét: Fríða Daðadóttir
Örvar & Steinar: Eysteinn Ari Arnarsson
Eydís spekingur: Elísabet Sól Sigurðardóttir
Rökkvi: Birkir Frosti Kjartansson
Lóa: Halla Björk Guðjónsdóttir
Dirrindí: Ástrós Tekla Jóhannsdóttir
Tónlist: Kristjana Stefáns
Söngtextar og handrit: Bergur Þór Ingólfsson
Saga: Andri Snær Magnason
Útsetningar og hljómsveitarstjórn: Eiríkur Rafn Stefánsson