
Stórsveit Reykjavíkur
Gullöld sveiflunnar
Hljóðritun frá tónleikum Stórsveitar Reykjavíkur sem fram fóru í byrjun árs í Eldborg, Hörpu.
Tónleikarnir eru helgaðir swingtímabilinu, 1930-50, þegar stórsveitir réðu ríkjum í tónlistarheiminum og stjórnendur, söngvarar og einleikarar voru poppstjörnur síns tíma.
Efnisskráin er fengin úr nótnabókum stórsveita Glenn Miller, Benny Goodman, Duke Ellington, Count Basie, Tommy Dorsey og fleiri og er í upprunalegum útsetningum.
Gestasöngvarar eru Hildur Vala Einarsdóttir, Selma Björnsdóttir og Bjarni Arason.
Stjórnandi og kynnir: Sigurður Flosason.
Um hljóðritun sá Gísli Kjaran Kristjánsson.
Birt
6. apríl 2026Aðgengilegt til
Rennur ekki út