Hljóðritun frá tónleikum í Föstudagsröð Sinfóníuhljómsveitar Íslands, 22. maí 2026. þar sem tónlistarmaðurinn Magnús Jóhann Ragnarsson flutti eigin tónlist í fjölbreyttum hljómsveitarútsetningum með hljómsveitinni.
Magnús leikur ekki eingöngu á píanó og hljómborð heldur hefur hann að undanförnu þjálfað sig í leik á hið dulmagnaða hljóðfæri Ondes Martenot sem fékk einnig að njóta sín á tónleikum.
Á efnisskrá:
Uglur.
Very Serious Music - frumflutningur.
Sálmur fyrir Sollu systur.
Stjórnandi: Ross Jamie Collins.
Kynnir: Ása Briem.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Magnús Jóhann Ragnarsson skapað sér viðurkenningu sem óvenju fjölhæfur tónlistarmaður á flestum sviðum tónlistar; sem tónskáld, hljómborðsleikari og upptökustjóri. Hann hefur fengist við fjölbreyttar stefnur og stíltegundir í tónlist, allt frá innhverfum djassi, sígildum dægurlögum, ómstríðri strengjatónlist til framsækinnar raftónlistar. Hann hefur nú gefið út níu hljóðrit, sína eigin tónlist og í samstarfi við söngkonuna GDRN og djassleikarana Skúla Sverrisson og Óskar Guðjónsson. Magnús Jóhann var valinn tónlistarflytjandi ársins í opnum flokki á Íslensku tónlistarverðlaununum 2023 og 2025. Auk þess hefur hann fengist við kvikmyndatónlist og hlaut tilnefningu til Edduverðlaunanna fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Ljósvíkingum. Á þessum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands frumflutti Magnús sitt fyrsta stóra hljómsveitarverk auk tveggja eldri verka í nýjum útsetningum.