Hljóðritun frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Listahátíð í Reykjavík 29. maí 2026.
Þetta stórvirki tónlistarsögunnar - áttunda sinfónía Gustavs Mahler - hefur aldrei áður verið flutt hér á landi og er öllu tjaldað til. Á sviðinu eru á fjórða hundrað flytjendur, óvenjustór hljómsveit, átta einsöngvarar, kór og barnakór. Mahler samdi þetta áhrifaríka tónverk á aðeins sex vikum árið 1906, sem risavaxinn fagnaðaróð til kærleikans og mennskunnar, fullan bjartsýni og trúar á mannkynið. Mahler var sannfærður um að skilaboð verksins ættu erindi við heimsbyggðina og enn í dag er flutningur verksins í raun alþjóðlegur tónlistarviðburður í hvert sinn.
Þessir tónleikar eru einnig kveðjustund Evu Ollikainen sem aðalstjórnanda, en hún hefur verið aðalstjórnandi og listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 2020.
Í þættinum ræðir Pétur Grétarsson við Evu um ár hennar hér á landi og samstarfið við hljómsveitina.
Einsöngvarar: Bryndís Guðjónsdóttir, Álfheiður Erla Guðmundsdóttir, Dísella Lárusdóttir, Anna Kissjudit, Hanna Dóra Sturludóttir, Simon O'Neill, Ólafur Kjartan Sigurðarson ogTómas Tómasson.
Kórar: Mótettukórinn, Hljómeyki, Söngsveitin Fílharmónía, Kór Langholtskirkju og Skólakór Kársness.
Kórstjórar: Stefan Sand, Magnús Ragnarsson og Álfheiður Björgvinsdóttir.
Hljómsveitarstjóri: Eva Ollikainen.
Kynnir: Pétur Grétarsson.