Samtal

Ásta Svavarsdóttir

Á sínum tíma voru helstu rökin fyrir sjálfstæði Íslands sótt í sjálft tungumálið - íslenskuna. Hún væri móðurtungu Norðurlanda og hefði alið af sér bókmenntir sem væru einn af hornsteinum evrópskrar menningar.

En hvernig horfir málið við einni öld síðar? Menningargróskan hefur sönnu aldrei verið meiri, en jafnframt er spurt hvernig tungunni muni reiða af í því stöðuga umróti áreita og ögrana sem eru daglegt hlutskipti nútímafólks. Á sunnudaginn kemur ræða þeir Pétur Gunnarsson og Ævar Kjartansson við Ástu Svavarsdóttur um sambúð íslensku og dönsku á 19. öld og þróun íslenskunnar á Vesturheimi.

Frumflutt

28. jan. 2018

Aðgengilegt til

4. feb. 2025
Samtal

Samtal

Umsjónarmenn gesti í hljóðver sem ræða um sjálfsmynd frá ýmsum sjónarhornum.

Umsjón Gísli Sigurðsson og Ævar Kjartansson.

Þættir

,