Samtal

Kristján Árnason

Á sínum tíma voru helstu rökin fyrir sjálfstæði Íslands sótt í sjálft tungumálið - íslenskuna. Hún væri móðurtungu Norðurlanda og hefði alið af sér bókmenntir sem væru einn af hornsteinum evrópskrar menningar.

En hvernig horfir málið við einni öld síðar? Menningargróskan hefur sönnu aldrei verið meiri, en jafnframt er spurt hvernig tungunni muni reiða af í því stöðuga umróti áreita og ögrana sem eru daglegt hlutskipti nútímafólks. Kristján Árnason er professor emeritus, fyrrverandi kennari í málvísindum við Háskóla Íslands. Hann hefur ritað fjölda greina um þróun íslenskunnar. Umsjón: Ævar Kjartansson og Pétur Gunnarsson.

Frumflutt

14. jan. 2018

Aðgengilegt til

21. jan. 2025
Samtal

Samtal

Umsjónarmenn gesti í hljóðver sem ræða um sjálfsmynd frá ýmsum sjónarhornum.

Umsjón Gísli Sigurðsson og Ævar Kjartansson.

Þættir

,