Passíusálmarnir og þjóðin

Jón M. Samsonarson og Helga Jóhannsdóttir

Rætt er við Jón M. Samsonarson og Helgu Jóhannsdóttur um geymd og fyrstu útgáfur Passíusálmanna og elstu heimildirnar um Hallgrím og ævi hans svo og um tónlistina og sálmana.

Lög við Passíusálma úr þjóðlagasafni Helgu Jóhannsdóttur eru sungin í upphafi og við lok þáttarins.

Ólafur Magnússon á Hnjóti syngur lag við 19. sálm og

Ívar Ívarsson í Kirkjuhvammi á Rauðasandi syngur lag við 20. sálm.

Frumflutt

1. mars 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Passíusálmarnir og þjóðin

Passíusálmarnir og þjóðin

Fjallað er um passíusálma Hallgríms Péturssonar (1614-1674) sem er eitt af höfuðskáldum Íslendinga. Í hugum flestra er hann fyrst og fremst trúarskáld. Meðal íslenskra sálmaskálda hefur hann þá sérstöðu sálmar hans hafa verið sungnir og lesnir meira en nokkurs annars skálds og merkasta verk hans, Passíusálmana, hefur þjóðin lesið og sungið á hverri föstu um aldir. Enn þann dag í dag eru sálmarnir lesnir í útvarpinu á hverju kvöldi alla virka daga föstunnar.

Umsjón: Hjörtur Pálsson.

Þættir

,