
Öll heimsins lönd
Í tuttugu ár ferðaðist Katrín Sif Einarsdóttir um heiminn, oftast ein á ferð og utan alfaraleiðar, þar til hún hafði heimsótt öll lönd heims. Í tveimur þáttum segir hún frá stríðshrjáðum ríkjum, lokuðum samfélögum, afskekktum eyjum og stórbrotinni náttúru, en einnig lífinu á ferðinni, forvitninni sem knýr hana áfram og þeim áskorunum sem hún hefur tekist á við. Þetta er ferðasaga sem spannar tvo áratugi, um manneskju sem lét óvenjulegan draum verða að veruleika.
Umsjón: Hinrik Wöhler