Öll heimsins lönd

1. þáttur: Stríðshrjáð ríki og óspillt náttúra

Katrín Sif Einarsdóttir hefur heimsótt öll lönd heims, oftast ein á ferð og utan alfaraleiðar. Í fyrri þættinum segir hún frá ferðum sínum um Jemen, Suður-Súdan og Afganistan, hvernig hún undirbýr sig fyrir ferðalög um átakasvæði og hvernig er upplifa af eigin raun lönd sem við þekkjum helst úr fréttum af stríði og óstöðugleika. Einnig kynnumst við lífi hennar á ferðinni, stórbrotinni náttúru Mongólíu, gönguferðum um Pamir-fjöllin og ævintýrum á Grænlandi.

Birt

5. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Öll heimsins lönd

Í tuttugu ár ferðaðist Katrín Sif Einarsdóttir um heiminn, oftast ein á ferð og utan alfaraleiðar, þar til hún hafði heimsótt öll lönd heims. Í tveimur þáttum segir hún frá stríðshrjáðum ríkjum, lokuðum samfélögum, afskekktum eyjum og stórbrotinni náttúru, en einnig lífinu á ferðinni, forvitninni sem knýr hana áfram og þeim áskorunum sem hún hefur tekist á við. Þetta er ferðasaga sem spannar tvo áratugi, um manneskju sem lét óvenjulegan draum verða veruleika.

Umsjón: Hinrik Wöhler

Þættir

,