
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Í síðustu viku var greint frá því að Litli spítalinn ehf. hefði tekið á leigu neðstu hæðir Háaleitisbrautar 68 þar sem stendur til að reka margþætta heilbrigðisþjónustu. Þar á meðal er svokölluð smáslysamóttaka, millistig bráðamóttöku og Læknavaktarinnar. Alma Möller heilbrigðisráðherra sagði í Silfrinu á mánudag að með þessari þjónustu væri ekki verið að lækna rétt mein og að vandi bráðamóttökunnar sé skortur á úrræðum fyrir aldraða. Ragnar Freyr Ingvarsson, formaður læknafélags Reykjavíkur, er ósammála Ölmu og segir neyðarástand hafa ríkt bráðamóttöku svo lengi sem elstu menn muna. Ragnar Freyr verður á línunni.
Í gærmorgun heyrðum við í Laufeyju Helgadóttur, íbúa í París til 40 ára og ræddum óeirðirnar sem hafa geisað þar og víðar í kjölfarið á mótmælum stúdenta í Frakklandi. Undanfarið höfum við fengið fréttir af óeirðum, ofbeldi og gripdeildum í Frakklandi sem dreifa sér nú um Evrópu og stjórnvöld virðast ráðalaus gagnarvart ástandinu. Nafnarnir Donald Trump Bandaríkjaforseti og Donald Tusk, forseti Póllands, hafa blandað sér í umræðuna og kennt innflytjendum um ástandið en aðrir, eins og Laufey í París, benti á að ástandið sé flóknara en svo. Torfi Tulinius, sérfræðingur í frönskum stjórnmálum, kemur til okkar og rýnir í ástandið.
Heimildarmyndin Naza byggir á samtölum við 24 uppljóstrara í her og leyniþjónustu ísraelska hersins sem lýsa því hvernig gervigreind var nýtt við árásir til að drepa tugþúsundir óbreyttra borgara á Gaza verður sýnd í Bíó paradís í kvöld. Óskarsverðlaunahafarnir og Yuval Abraham og Rachel Szorlaut frá Ísrael leikstýra myndinni sem hlaut sérstök dómnefndarverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í september. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, framkvæmdastjóri Courage International og Kolfinna Tómasdóttir, meðstofnandi AiXist, koma til okkar.
Högg er glænýtt leikrit sem hefur hlotið einstakar viðtökur, meðal annars á West End og á Broadway. Verkið er byggt á sannri sögu, frásögn ungs manns, Jacobs Dunne sem ólst upp í harkalegu umhverfi í Nottingham í Bretlandi. Högg er tileinkað minningu James Hodgkinson og allra fórnarlamba eins hnefahöggs. Unnur Ösp Stefánsdóttir og Edda Björg Eyjólfsdóttir fara með hlutverk í Höggi og ætla að koma til okkar.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.